75 prósent kvenna í meðferð verið beittar kynferðislegu ofbeldi

Niður­stöður nýrrar rann­sóknar um reynslu og áfalla­sögu kvenna í fíkni­meðferðum eru sláandi. Mikill meirihluti þátt­takenda hefur verið beittur kynferðis­legu ofbeldi á lífs­leiðinni og nær 35 prósent verið kynferðis­lega áreittar í meðferð.

Ný rannsókn sem fjallar um reynslu kvenna af fíkni­meðferð sýnir meðal annars að 75 prósent kvenna höfðu orðið fyrir kynferðis­legu ofbeldi á fullorðins­aldri og 51 prósent höfðu orðið fyrir kynferðis­legu ofbeldi í æsku. 

Niður­stöðurnar voru kynntar á ráðstefnu SÁÁ 2. október síðastliðinn. Markmið rann­sóknarinnar er að fá innsýn í reynslu kvenna af meðferðar­úrræðum og upplýsingar um líðan þeirra og öryggi í meðferð. Enn fremur að skoða sögu kvennanna með sérstöku tilliti til erfiðrar upplifunar í æsku og hvort að þær eigi sögu um ofbeldi í nánum samböndum.

35% áreittar í meðferð

Það var RIKK – Rannsókna­stofnun í jafnréttis­fræðum við Háskóla Íslands, sem hafði umsjón með framkvæmd rann­sóknarinnar sem framkvæmd var í samstarfi við Rótina – félag um málefni kvenna með áfengis- og fíkni­vanda og hlaut hún styrk frá Jafnréttis­sjóði Íslands. Spurninga­listi var sendur á 305 félaga í Rótinni og bárust 110 svör og höfðu þar af 96 konur átt við fíkni­vanda að stríða. Alls hafa 88,7 prósent þátt­takenda leitað sér aðstoðar vegna fíkni­vanda. 

Konurnar voru spurðar út í reynslu og viðhorf til meðferðarinnar. Alls töldu 66,3 prósent að meðferðin hefði ekki verið nægjanlega einstaklingsmiðuð og 75,9 prósent töldu að vinna með áföll og annað sem hefur áhrif á andlega heilsu hafi verið ófullnægjandi. Rúmlega 60 prósent töldu meðferðina hafa verið árangurs­ríka en rúm 15 prósent töldu hana ekki hafa borið árangur. Þá fannst um 43 prósent þátt­takenda starfs­fólk meðferðarinnar sýna sér skilnings­leysi.

Þátt­takendur voru einnig spurðir hvort þeir hefðu orðið fyrir áreitni og ofbeldi í meðferð eða orðið vitni að slíku. Alls sögðust 23 prósent hafa orðið vitni að einelti í meðferðinni, 21 prósent að óhóflegri vald­beitingu starfs­fólks, 45 prósent urðu vitni að ófaglegum eða óviðeigandi athuga­semdum starfs­fólks í meðferðinni og 35 prósent ofbeldi gegn öðrum þátt­takanda í meðferðinni, af hendi annarra þátt­takenda, og 15 prósent að hótun.

Þegar spurt var um ofbeldi og áreitni sem konurnar höfðu sjálfar orðið fyrir sögðust 34,6 prósent hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í meðferð, 12 prósent fyrir kynferðis­legu ofbeldi, tæp 14 prósent fyrir einelti og 28 prósent fyrir andlegu ofbeldi. Einnig höfðu sex prósent orðið fyrir líkamlegu ofbeldi og tæp fjögur prósent fyrir fjárhags­legu ofbeldi.

Mikil áfallasaga

Einnig var spurt um ofbeldi sem konurnar höfðu orðið fyrir á fullorðins­árum, ótengt meðferð, og höfðu rúm 80 prósent þátt­takenda orðið fyrir kynferðislegri áreitni, tæp 75 prósent fyrir kynferðis­legu ofbeldi, 88 prósent fyrir andlegu ofbeldi, tæp 56 prósent fyrir líkamlegu ofbeldi og rúm 46 prósent fyrir fjárhags­legu ofbeldi og sama hlutfall hafði orðið fyrir einelti.

Þá var spurt út í mótlæti og áföll í æsku og samkvæmt niður­stöðunum höfðu 55 prósent þátt­takenda upplifað andlegt ofbeldi á heimili sínu í æsku, 34 prósent líkamlegt ofbeldi, 51 prósent kynferðislegt ofbeldi, 70 prósent sögðu að skort hefði upp á ást og umhyggju í uppvextinum og 37 prósent sögðust hafa verið vanrækt. Þá voru 35 prósent svarenda skilnaðar­börn, og 20 prósent höfðu upplifað líkamlegt ofbeldi gegn móður. Í 65 prósent tilfella var einhver á heimilinu með áfengis- eða fíkni­vanda og í 60 prósent tilfella var einhver þung­lyndur, andlega veikur eða aðili sem reyndi að fyrirfara sér á heimilinu. Í rétt tæplega 14 prósent tilfella hafi heimilis­meðlimur farið í fangelsi.

Taldi umfjöllun fela í sér „dylgjur“

Stundin fjallaði um mæðgurnar Frigg Ragnars­dóttur og Kolbrá Braga­dóttur í júní síðastliðnum, en þær höfðu báðar annaðhvort upplifað eða orðið vitni að kynferðislegri áreitni í meðferð hjá SÁÁ. Frigg, 22 ára, hröklaðist út af Vogi í kjölfar áreitni án þess að ljúka meðferð en móðir hennar, Kolbrá, fylgdi vinkonu sinni í gegnum þá reynslu að vera fyrirvara­laust rekin úr meðferð eftir að hafa kvartað undan áreitni. 

 Í kjölfar umfjöllunarinnar stigu fleiri konur fram og höfðu sams konar sögur að segja. Anna Bentína Hermansen, ráðgjafi hjá Stíga­mótum, var á meðal þeirra sem gagnrýndu skort á tilliti til kynja­sjónarmiða í tilhögun meðferða SÁÁ. Sjálf var hún til að mynda beðin um að ræða ekki nauðgun og fleiri áföll sem hún hafði orðið fyrir í meðferðinni, til þess að trufla ekki aðra. 

Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, sendi frá sér yfir­lýsingu vegna umfjöllunarinnar og varaði við frétta­flutningi af reynslu kvenna af meðferðum stofnunarinnar vegna þeirra áhrifa sem „slíkar dylgjur geta valdið“. 

Nokkrar tölur úr rannsókninni

Áreiti  og ofbeldi í æsku

51% kynferðislegt ofbeldi.

55% höfðu upplifað andlegt ofbeldi á heimili sínu.

34% líkamlegt ofbeldi.

70% skorti ást og umhyggju.

37% vanrækt.

Áreiti og ofbeldi á fullorðinsárum

80% höfðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni.

75% höfðu orðið fyrir kynferðis­legu ofbeldi.

88% andlegu ofbeldi.

56% líkamlegu ofbeldi.

46% fjárhags­legu ofbeldi.

46% einelti.

Áreiti og ofbeldi Í meðferð

34,6% höfðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni í meðferð.

12% kynferðis­legu ofbeldi.

14% einelti.

28% andlegu ofbeldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár