Pressunni stefnt út af 40 milljóna króna skuld

Fjöl­miðlar seldir út úr Pressunni, fjölmiðla­fyrirtæki Björns Inga Hrafns­sonar, vegna erfiðrar skulda­stöðu fyrir­tækisins. Að minnsta kosti þrjú mál hafa verið höfðuð gegn Pressunni út af ógreiddum skuldum.

Kaupir eignir Pressunanr
Kaupir eignir Press­un­anr Hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son leiðir hlut­hafa­hóp sem hefur keypt fjöl­miðla Pressunnar. Óljóst er hvaða áhrif þau við­skipti munu hafa fyrir kröfu­hafa Pressunnar. Mynd: Pressphotos

Fjölmiðla­fyrirtækinu Pressunni ehf. hefur verið stefnt, ásamt DV ehf., út af samtals rúmlega 40 milljóna króna skuld við sænskt fjölmiðla­fyrirtæki sem heitir NRS Media. Þetta segir lögmaður NRS Media, Hulda Rós Rúríksdóttir, aðspurð um stefnuna gegn Pressunni ehf. en aðal­meðferð fer fram í málinu í Héraðs­dómi Reykja­víkur í lok september. 

Árangurslaust fjárnám 

Hulda Rós segir að árangurs­laust fjárnám hafi verið gert hjá Pressunni og DV ehf. út af skuldinni og að mála­ferlin hafi því verið þrauta­lending eftir síendurteknar innheimtu­aðgerðir. „Þessi krafa er til staðar og staða hennar í dag er um 40 milljónir króna,“ segir Hulda Rós, en um er að ræða tvö aðskilin mál gegn Pressunni annars vegar og DV ehf. hins vegar. 

Málin tvö bætast við málaferli félagsins Útvarðar ehf. gegn Pressunni út af rúmlega 90 milljóna króna skuldar sem er tilkomin vegna viðskipta með hlutabréf í DV árið 2014.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár