Útlendingastofnun synjaði að taka hælisumsókn feðginanna Abrahims Maleki og ellefu ára gamallar dóttur hans, Hanyie, til efnismeðferðar. Feðginin eru afgönsk og þurftu að leggja í hættulega för til að komast hingað til lands. Þá glímir Abrahim við bæklun á fæti sem hefur það í för með sér að litla stúlkan hefur þurft að annast föður sinn og sjá um húsverk og annað heimilishald. Rúmlega 10 þúsund undirskriftir hafa safnast þar sem krafist er að feðginin fái áheyrn hjá stjórnvöldum
Abrahim Maleki og ellefu ára gömul dóttir hans, Hanyie, geta átt von á því að verða send úr landi hvenær sem er. Útlendingastofnun hafnaði því að veita feðginunum efnismeðferð og staðfesti kærunefnd útlendingamála þá niðurstöðu. Stundin fjallaði ítarlega um sögu og stöðu feðginanna.
Fyrir undirskriftasöfnuninni standa Solaris, hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi og hafa þegar fréttin er skrifuð 10,697 undirskriftir safnast. „Við biðlum til ykkar að aðstoða okkur með að skora á stjórnvöld að hætta að misnota Dyflinnarregluna, virða mannréttindi og veita Abrahim og Hanyie áheyrn í þeirra máli. Þau hafa mátt þola nóg,“ segir meðal annars í áskoruninni.
Vísað brott þrátt fyrir viðkvæma stöðu
Útlendingastofnun hafnaði því, sem fyrr segir, að taka umsókn Abrahims og Hanyie um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar. Var sú ákvörðun staðfest af kærunefnd útlendingamála. Niðurstaða stofnunarinnar var sú að Abrahim og Hanyie væru ekki talin í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þau skyldu yfirgefa Ísland og bæri að senda þau til Þýskalands.
Hins vegar komst kærunefnd útlendingamála að þeirri niðurstöðu að feðginin væru í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þrátt fyrir það var ekki fallist á að taka mál þeirra til efnismeðferðar. Þau geta því átt von á því að verða flutt á brott hvenær sem er á næstu dögum, en þeim var tilkynnt að þau yrðu látin yfirgefa landið í síðasta lagi þann 19. júlí, fyrir rúmum tveimur vikum síðan.
300 manns mættu í afmælisveislu Hanyie
Í ljósi þess að feðginunum bíða þau örlög að vera send úr landi var ákveðið að láta heitustu ósk Hanyie rætast, að fá að halda upp á afmælið sitt hér á landi. Veislan fór fram í síðustu viku en Hanyie á afmæli í október. Þetta gekk vonum framar og var alveg æðislegt. Það var mikill stuðningur og kærleikur,“ sagði Guðmundur Karl Karlsson, einn skipuleggjenda veislunnar við mbl.is.
Mikill fjöldi manns mætti í veislunna sem haldin var á Klambratúni. Ókunnugir og vinir færðu Hanyie góðar gjafir en hún fékk til dæmis Iphone-síma og um 600 þúsund krónur. Það munar auðvitað þvílíkt um það, sérstaklega þegar maður á ekki neitt,“ sagði Guðmundur við mbl.is. „Það er klárt mál að þetta er peningur sem mun nýtast vel.“
Líklega send til Afganistan
Fyrir fjórum vikum var á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar ákveðið að senda feðginin til Þýskalands. Þar er nærfullvíst að þau verði send til Afganistan. Þar á Hanyie engin tengsl önnur en þjóðerni foreldra sinna og hefur aldrei búið þar. Hún var fædd í flóttamannabúðum í Íran árið 2005 en móðir hennar yfirgaf hana ári síðar. Allt sitt líf hefur hún verið á flótta og hefur hann oft reynst háskalegur. Þá hefur Abrahim verið á flótta í nærfellt tvo áratugi. Þau óska þess einskis frekar en að fá að fá hæli hér á landi.
Athugasemdir