Síminn kaupir Vísi, Bylgjuna og allan útvarpsrekstur Sýnar

Sýn hefur gengið til einka­við­ræðna við Símann, sinn helsta keppi­naut, um sölu á Vísi, Bylgj­unni, FM957 og öðrum útvarps­rekstri. Sjón­varps­stöðin sem einu sinni hét Stöð 2 fylgir ekki með í kaup­unum, sem metin eru á 5,25 millj­arða króna.

Síminn kaupir Vísi, Bylgjuna og allan útvarpsrekstur Sýnar

Síminn hefur gengið til við­ræðna við Sýn um kaup á Vísi, Bylgj­unni og öðrum útvarps­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins. Sjón­varps­stöðin Sýn, sem eitt sinn hét Stöð 2, fylgir ekki í kaup­unum. Gengið er út frá því í við­ræð­unum að heild­ar­virði við­skipt­anna nemi 5.250 millj­ónum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingum fyr­ir­tækj­anna tveggja til Kaup­hall­ar­innar, en bæði félög eru skráð á markað. „Rekstr­ar­ein­ingin sem um ræðir inni­heldur vef­miðl­ana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarps­miðlum Bylgj­unnar, Létt­bylgj­unnar, Gull­bylgj­unnar, FM957, X977 og hlað­varpsveit­unni Tal,“ segir þar.

Nið­ur­staðan um hvort af verður kaup­unum eða ekki veltur á áreið­an­leika­könnun, sam­komu­lagi um end­an­legan kaup­samn­ing, sam­þykkt stjórna beggja fyr­ir­tækja og opin­berra eft­ir­lits­að­ila. 

Í til­kynn­ing­unum kemur fram að tekjur af þessum rekstri hafi numið um þremur millj­örðum króna á síð­asta ári. 

Í til­kynn­ingu sýnar segir að salan sé liður í því að ein­falda starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og styrkja rekstr­ar­grund­völl til fram­tíðar. Í til­kynn­ingu Símanns segir að fjöl­miðla­rekst­ur­inn falli …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár