Enduðu ofan í ísilögðu vatni

Bílslys í vara­sömum aðstæðum nálægt Stykk­is­hólmi.

Enduðu ofan í ísilögðu vatni
Bíllinn í vatn­inu Björg­un­ar­sveitin Ber­serkir hjálp­aði fólk­inu. Mynd: Landsbjörg

Bílslys varð á veg­inum um Snæ­fells­nes, austan við Stykk­is­hólm í hádeg­inu í dag, þegar ferða­menn óku út af veg­inum ofan í ísilagt vatn. 

Björg­un­ar­sveitin Ber­serkir í Stykk­is­hólmi var kölluð út vegna slyss­ins og hafði fólkið þá klifrað upp á þak bíls­ins. Þar sátu þau þegar sveitin kom aðvíf­andi.

Aðstæður voru þannig að mikið vatn hafði safn­ast við veg­inn svo rann inn á hann að stórum hluta. Þegar fólkið kom aðvíf­andi virð­ist sem bíll þeirra hafi flotið upp þegar þau keyrðu í vatnið á veg­inum og öku­mað­ur­inn misst stjórn á bílnum í kjöl­farið.

Ekki urðu slys á fólk­inu en það blotn­aði eitt­hvað við þetta og far­angur þeirra, sem var bjargað úr bílnum, var orð­inn ansi blautur.

Björg­un­ar­sveitin flutti fólkið svo inn á Stykk­is­hólm þar sem lög­regla tók við því. Bíla­leig­unnar beið að ná bílnum úr vatn­inu og færa ferða­löng­unum annan bíl til að halda ferð sinni áfram.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár