Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana

Jane Mayer, blaða­maður hjá The New Yorker, segir millj­arða­mær­inga fjár­magna sam­tökin Turning Point sem borg­uðu Norð­ur­landa­ferð hóps Repúblik­ana að hitta for­mann Mið­flokks­ins og fleira áhrifa­fólk af hægri vængnum. Hún hefur rann­sakað net Charles Koch sem nær til Íslands. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur ekki svarað því hver greiddi ferð hans.

Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana
Jane Mayer Rann­sókn­ar­blaða­maður The New Yorker rakti pen­inga­slóð Koch-bræðra í bók sinni, Dark Money. Mynd: AFP

Rann­sókn­ar­blaða­mað­ur­inn Jane Mayer hjá The New Yorker segir í við­tali við Heim­ild­ina að huldufé banda­rískra millj­arða­mær­inga hafi greitt fyrir ferð hátt­settra Repúblik­ana til að funda með for­manni Mið­flokks­ins og öðru áhrifa­fólki af hægri væng stjórn­mála Norð­ur­landa síð­asta sumar.

Í sam­tali við Heim­ild­ina segir hún að mark­mið millj­arða­mær­ing­anna sé að draga úr trú almenn­ings á að lofts­lags­breyt­ingar séu raun­veru­legar, enda hafi þeir mik­illa hags­muna að gæta í olíu­iðn­að­inum. Þá þrýsti þeir á minni tak­mark­anir á við­skipta­frelsi alþjóð­legra stór­fyr­ir­tækja og lægri skatta á þá ríku.

Mayer hefur rann­sakað fjár­mál og spill­ingu í banda­rískum stjórn­málum og hlotið fjölda verð­launa fyrir störf sín. Árið 2016 gaf hún út bók­ina Dark Money, þar sem hún skoð­aði styrk­veit­ingar bræðr­anna Charles og David Koch í stjórn­málum, en þeir eru meðal helstu aðila bak við net hug­veitna og stofn­ana sem teygja anga sína til Íslands.

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Og þetta er Miðflokkurinn !!!
    0
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Mig langar að benda á heimildarmyndina,
    Everything Is a Rich Man’s Trick, sem, að mínu mati, útskýrir á mannamáli hvernig atvik fortíðarinnar koma okkur í koll í dag. (linkur hér)
    https://youtu.be/4oVpt_I9iQQ?si=jC5NUuFFhsoEQs5j
    2
    • GH
      Greg Hill skrifaði
      Ég horfði á myndina en varð að lokum fyrir vonbrigðum því hún notar sama bragð og hún sakar ofurríka um: að blanda saman sannleika og lygum. Sannleikurinn öðlast traust fólks, svo það gleypir nokkrar lygar. Til dæmis, eins og nokkrir álitsgjafar hafa bent á, á einum tímapunkti í myndinni er fáránleg verðbólguspá upp á 25 milljónir Bandaríkjadala á sjöunda áratugnum sem jafngildir 250 billjónum þegar myndin var gerð (ég man ekki nákvæmar tölur en athugasemdirnar sýna það). Ef þú fylgist vel með eru margar fleiri lygar og órökstuddar fullyrðingar. Bók Marks Lane, „Rush to Judgment“, er miklu betri til að greina morðið á Kennedy.
      0
  • Bergljót Davíðsdóttir skrifaði
    Spyr mig hvað er að baki þegar fólk gengur í Miðflokkinn. Er það að þar nái þeir sætum neðar á lista, eða er það virkilega skoðun þeirra sem ganga í flokki fasismi sé það eina rétta. Burt með landflótta manneskjur, höldum þjóðernisrembingnum á lofti. Eiga fátækir að svelta. Hvað er það eiginleg sem fær þokkalega greindar mannelskur til að vera með þessum skelfilegu fasisikar áherslur? Eru þeir að hugsa um eigin hag en ekki heildarinnar sem þeir sem bjóða sig fram til áhrifa ber skylda til að gera einmitt það. Velferð heildarinnar en ekki eiginn hag.
    13
  • HÖ
    Hreiðar Ögmundsson skrifaði
    Fólk með þessar tilhneygingar hefur orðið appelsínugult í framan.
    4
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Takk fyrir þessa umfjöllun. Það er afar þarft verk að afklæða Miðflokkinn svo kjósendur sjái hann í viðurstyggilegri MAGA, öfga-hægri nekt sinni.
    24
    • ÓRÁ
      Óli Rúnar Ástþórsson skrifaði
      Er hugmyndafræðin ekki bara Trump í torfkofa?
      5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við erlenda flokka og hug­veitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár