Ráðgjafi Nigel Farage tengir Mið- og Sjálfstæðisflokk við bandarískt áhrifafólk

Ráðgjafi Nigel Farage tengdi saman for­ystu­fólk Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks­ins við þing­menn Repúblikana­flokks­ins og hug­veitur í Banda­ríkj­unum. Það var gert til þess að efla tengsl flokk­anna við banda­rísk stjórn­mál.

Ráðgjafi Nigel Farage tengir Mið- og Sjálfstæðisflokk við bandarískt áhrifafólk
Styrkja tengslin Markmið for­ystu­fólks flokk­anna var að styrkja tengslin við Banda­rísk stjórn­völd og hitta banda­rískar hug­veitur.

Bæði Sjálf­stæð­is­flokkur og Mið­flokkur hafa greitt banda­rískum aðstoð­ar­manni breska þjóð­ern­isí­halds­leið­tog­ans Nigel Farage, Zachary Freeman, millj­ónir króna fyrir að skipu­leggja ferðir til Banda­ríkj­anna. Freeman hefur skráð sig sem umboðs­mann þess­ara tveggja flokka hjá banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Hann vill ekki gefa upp um hvaða ein­stak­linga hann tengdi íslensku stjórn­mála­menn­ina við en hvorki Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, né Bergþór Ólason, sem skrif­aði undir samn­ing við Freeman, hafa svarað fyr­ir­spurnum Heim­ild­ar­innar.

Ráðgjafi Nigel Farage

„Bæði Mið­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn höfðu sam­band við mig og sögð­ust vilja eiga fundi, meðal ann­ars í Washington,“ segir Zachary G Freeman, for­stjóri og eig­andi Imperial Independent Media. Mark­miðið var að hitta þing­menn Repúblikana­flokks­ins og banda­rískar hug­veitur að því er fram kemur í svo­kall­aðri FARA-skrán­ingu sem er nauð­syn­leg lobbí­istum eða ráð­gjöfum sem ætla að leiða saman banda­rískt og erlent stjórn­mála­fólk á banda­rískri grundu. Zachary er vel tengdur inn í Repúblikana­flokk­inn eftir að hafa starfað sem póli­tískur ráð­gjafi og aðstoð­ar­maður kjör­inna …

Kjósa
56
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Kaldhæðni örlaganna. Tala gegn innflytjendum og hugsanlegum áhrifum þeirra á íslandi. Fólki sem vill gerast íslenskir ríkisborgarar í flestum tilfellum. Einstaklingum sem ýmist eru að flýja ofsóknir eða óstjórn af einhverju tagi eða bara leita sér að betra lífi. Snúa sér svo við og vilja flytja inn hugmyndafræði og áhrif frá pólitískum hagsmunaaðilum í Bandaríkjunum. Hægri öfgamönnum sem halda heiminum nú á barmi þriðju heimstyrjaldarinnar og vilja ólmir taka skrefið fram af þeirri brún. Er hægt að velja "betri" tímasetningu fyrir þetta? Er þessum mönnum treystandi?
    0
  • Viðar Pétursson skrifaði
    Kostulegt að sjá Sigmund Davíð svara Dag b þegar hann spurði út í þetta.
    Simmi með MAGA tal, réðst á manninn en ekki málefnið, kallaði, lygari og eitthvað leikskóla rugl. Nákvæmlega eins og Trump/maga haga sér
    2
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Af hverju svara þessir stjórnmálaleiðtogar ekki mikilvægum spurningum, spurningum sem kjósendur eiga fullkominn og mikilvægan rétt á að fá svar við? Hvað eru þeir að fela?
    9
  • Friðrik Helgason skrifaði
    Sumir þurfa að líta í eigin barm áður en þeir saka stjórnvöld um að fara á bak við þjóðina
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við erlenda flokka og hug­veitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár