Hæstiréttur með margar athugasemdir við hryðjuverkamálið

Hæsti­réttur hefur margt að athuga við máls­með­ferð Lands­réttar í hryðju­verka­mál­inu gegn Sindra Snæ Birg­is­syni og Ísidóri Nathans­syni. Málið verður flutt að nýju í heild sinni.

Hæstiréttur með margar athugasemdir við hryðjuverkamálið
Verj­endur Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður Sindra, og Einar Oddur Sig­urðs­son, lög­maður Ísidórs. Mynd: Golli

Hæsti­réttur hefur ómerkt dóm Lands­réttar í hryðju­verka­máli gegn Sindra Snæ Birg­is­syni og Ísidóri Nathans­syni. Rétt­ur­inn hefur vísað mál­inu aftur til Lands­réttar til með­ferðar og nýrrar dóms­upp­kvaðn­ingar. Þetta kemur fram í nýbirtum dómi Hæsta­réttar, sem kveð­inn var upp fyrr í dag.

Með dómi Lands­réttar höfðu Sindri og Ísidór verið sak­felldir fyrir stór­felld brot gegn vopna­lögum en sýkn­aðir af ákærum um til­raun til hryðju­verka og hlut­deild í slíku broti. Hæsti­réttur taldi að svo veru­legir ann­markar hefðu verið á með­ferð máls­ins í Lands­rétti að ekki yrði hjá því kom­ist að ómerkja dóm­inn í heild.

Að mati Hæsta­réttar lagði Lands­réttur ekki réttan skiln­ing í sönn­un­ar­kröfur almennra hegn­ing­ar­laga um til­raun til brots í hryðju­verka­hluta máls­ins.

Hæsti­réttur segir að ekki verði leiddar strang­ari kröfur til hug­lægrar afstöðu manns þegar metið er hvort um til­rauna­brot sé að ræða en almennt gildi um refsi­verðan ásetn­ing, að öðru leyti en því að lægsta stig ásetn­ings eigi vart við þegar ein­ungis séu komin fram und­ir­bún­ings­verk. Þar hafi Lands­réttur gengið of langt með því að leggja til grund­vallar strang­ara mat á ásetn­ingi en lög standi til.

Sömu­leiðis segir Hæsti­réttur að dómur Lands­réttar beri ekki nægi­lega með sér að lagt hafi verið heild­stætt mat á sam­hengi milli ummæla mann­anna tveggja, net­leitar, vist­unar gagna, aðdá­unar á hryðju­verka­mönnum, öfl­unar upp­lýs­inga um sprengjur, dróna, lög­reglu­búnað og þeirra alvar­legu vopna­laga­brota sem þeir voru sak­felldir fyrir.

Einnig er sér­stak­lega vísað til þess að ekki hafi verið tekin full­nægj­andi afstaða til breytts fram­burðar Ísidórs og vitnis í mál­inu, né heldur til sér­fræði­gagna um geð­heilsu ákærðu, hættu­mats grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra og grein­ar­gerða Europol. Að mati Hæsta­réttar var þetta allt til þess fallið að hafa þýð­ingu við mat á því hvort sannað væri að Sindri hefði tekið ákvörðun um að fremja þá teg­und hryðju­verks sem lýst var í ákæru.

Hæsti­réttur taldi því að rök­stuðn­ingur Lands­réttar hefði verið ófull­nægj­andi og að ekki hefði farið fram það raun­veru­lega heild­stæða mat sem lög krefj­ast. Þar sem Hæsti­réttur getur ekki end­ur­metið sönn­un­ar­gildi munn­legs fram­burðar ákærðu og vitna taldi rétt­ur­inn óhjá­kvæmi­legt að ómerkja dóm­inn og senda málið aftur til Lands­réttar.

Í dóm­inum er einnig vikið að refsi­á­kvörðun Lands­réttar vegna vopna­laga­brot­anna. Hæsti­réttur segir óljóst á hvaða sjón­ar­miðum refsim­ildun Lands­réttar hafi byggst, meðal ann­ars í ljósi þess að ekki verði ráðið af for­sendum dóms­ins hvort til­tekin atriði hafi haft áhrif til þyng­ingar eða mild­unar refs­ingar.

Nið­ur­staðan er því sú að allur dómur Lands­réttar fellur úr gildi og málið verður tekið fyrir á ný fyrir því dóm­stigi.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár