Fossarnir sem hverfa

Tómas Guð­bjarts­son gekk nýverið um svæðið sem mun raskast með Hval­ár­virkjun á Ströndum og tók myndir af þessum nátt­úruperlum, sem eru að hans mati á heims­mæli­kvarða. Eftir að hafa farið yfir helstu rök með og á móti virkj­un­inni kemst hann að þeirri nið­ur­stöðu að virkj­unin muni ekki leysa vanda­mál Vest­fjarða. Það ætti að vera í höndum rík­is­ins.

Und­an­farið hefur fyr­ir­huguð virkjun Hvalár í Ófeigs­firði á Ströndum verið mikið til umræðu og sýn­ist sitt hverjum. Umræðan hefur að mínu mati verið ein­hliða og upp­lýs­ingar til almenn­ings og fjöl­miðla oft verið mis­vísandi. Nýlega ákvað ég að ferð­ast um fyr­ir­hugað virkj­ana­svæði, gang­andi með allt á bak­inu. Þetta reynd­ist með stór­kost­leg­ustu göngu­ferðum sem ég hef nokkru upp­lifað, enda eru á þessu svæði lítt þekktar nátt­úruperlur sem eru á heims­mæli­kvarða. 

Hér reifa ég þessa umdeildu virkj­ana­fram­kvæmd út frá stað­reyndum, eins og þær blasa við mér, áhuga­manni um úti­vist og nátt­úru­vernd. Ég greini jafn­framt frá göngu­ferð minni með ljós­myndum sem ég tók og sýna hversu stór­feng­legt þetta svæði er. Það skal tekið skýrt fram að ég hef engra ann­arra hags­muna að gæta ann­arra en þeirra sem snúa að nátt­úru­vernd.

Vestfirðir eru málið

Ásamt Kverk­fjöllum og Torfa­jök­uls­svæð­inu eru Vest­firðir og þá sér­stak­lega Horn­strandir og Strandir, það svæði á Íslandi sem er mér hvað kær­ast. Þangað hef ég komið ótelj­andi sinnum og þar hef ég gengið um flesta firði og helstu fjöll. Ég á ættir mínar að rekja í Arn­ar­fjörð og á fjölda ætt­menna á Vest­fjörðum, enda þótt ég sé búsettur og starfi sem læknir í Reykja­vík.

Sem ungur læknir átti ég þess kost að starfa á Ísafirði og Suð­ur­eyri. Sú reynsla var mér óment­an­leg og um leið kynnt­ist ég Vest­firð­ingum og þeim áskor­unum sem byggð­ar­lögin standa frammi fyrir, áskor­unum sem meðal ann­ars snú­ast um atvinnu­mál og fólks­fækkun. Borið saman við aðra lands­hluta er ljóst að þróun inn­viða á Vest­fjörðum hefur dreg­ist aftur úr og á það sér­stak­lega við um sam­göngur. Vest­fjarða­kjálk­inn er tæp­lega 9% af flat­ar­máli Íslands og djúpir dalir og heiðar gera að verkum að sam­göngur eru óvíða erf­ið­ari hér­lendis, sem snertir beint þá tæp­lega 8000 ein­stak­linga sem þar búa, eða 2,4 % þjóð­ar­innar.

Vest­firðir hafa þó skilað þjóð­ar­bú­inu miklum tekjum í gegnum öfl­ugan sjáv­ar­út­veg, en feng­sæl fiski­mið auk ein­stakrar nátt­úru er óneit­an­lega for­gjöf sem þeir hafa miðað við aðra lands­hluta. Af þessum sökum hafa Vest­firðir skipað sér sér­stakan sess hjá flestum Íslend­ingum en einnig hjá sívax­andi fjölda erlendra ferða­manna sem sækja Vestjarða­kjálk­ann heim.

RjúkandiFossinn Rjúkandi í sam­nefndri á er ein helsta nátt­úruperlan á fyr­ir­hug­uðu virkj­ana­svæði. Rennsli í honum mun minnka um 40%, sem aug­ljós­lega hefur mikil áhrif á ásýnd þessa fal­lega sköp­un­ar­verks nátt­úr­unnar.

Hvalárvirkjun er stórvirkjun

Íslend­ingar fram­leiða meiri orku á íbúa en nokk­urt annað land í heim­inum, og fara 80% þess­arar orku til stór­iðju, aðal­lega álvera (3/4) en einnig járn­blendis og kís­il­iðju. Þrír fjórðu af þess­ari raf­orku er fram­leiddur með vatns­afl­virkj­unum, en fjórð­ungur með gufu­afli. Í sam­an­burði við risa­virkj­an­irnar við Kára­hnjúka (670 MW) og Búrfelli (270 MW) gæti 55 MW virkjun í Hvalá við fyrstu sýn virst lítil. Það er hún hins vegar ekki, enda er árs­fram­leiðsla Hval­ár­virkj­unar metin á 260 gígawattstundir sem er tals­vert umfram orku­þörf­ina á Vest­fjörðum sem er metin í kringum 230 gígawattstundir.

„Þróun innviða á Vestfjörðum hefur dregist aftur úr.“

Hvert fer rafmagnið?

Helstu rökin fyrir Hval­ár­virkjun eru þau að hún styrki inn­viði á Vest­fjörðum; aðal­lega með bættu raf­magns­ör­yggi en einnig auk­inni atvinnu­upp­bygg­ingu og fjölgun starfa, betri sam­göngum og lagn­ingu ljós­leið­ara og þriggja fasa raf­magns til íbúa Árnes­hrepps. Við nán­ari skoðun virð­ast mörg þess­ara atriða varla stand­ast skoðun.

Ljóst er að raf­magn frá Hvá­l­ár­virkjun verður að stórum hluta nýtt til stór­iðju fyrir sunnan, enda fram­leiðslan langt umfram þarfir Vest­fjarða, sér­stak­lega þar sem Orkubú Vest­fjarða fram­leiðir í dag í kringum 90 gígawattstundir árlega, aðal­lega í Mjólk­ur­ár­virkjun. Fram­kvæmda­að­ilar við virkj­un­ina eru aðal­lega tveir, HS Orka og Vest­ur­verk. Tengsl HS Orku við stór­iðju á Íslandi eru sterk en hún er í 68% eigu kanadísks fjár­festis. HS Orka er síðan eig­andi að 70% Vest­ur­verks. Ljóst er að orku vantar til stór­iðju fyrir sunnan, til dæmis fyrir umdeild kís­il­iðju­ver United Silicon í Helguvík. Áhugi HS Orku og Vest­ur­verks á virkjun Hvalár er því mik­ill.

Mörgum hefur reynst erfitt að henda reiður á hvert leiða á raf­magnið frá Hval­ár­virkjun, en bæði Nauteyri við Ísa­fjarð­ar­djúp og Gils­fjörður hafa verið nefnd í því sam­bandi. For­svars­menn HS Orku segj­ast vilja grafa háspennu­línur frá virkj­un­inni í jörð, aðal­lega til að tak­marka sjón­mengun. Landsnet, sem myndi sjá um línu­lögn­ina, hefur hins vegar ekki getað stað­fest þetta, enda umtals­vert dýr­ari lausn en loft­línur. Það er því margt á huldu um hvort Hval­ár­virkjun muni í raun bæta öryggi á afhend­ingu raf­magns á Vest­fjörðum – enda orkunni fyrst og fremst ætlað annað.

Óveruleg fjölgun starfa og ófullnægjandi samgöngur

Á meðan bygg­ingu virkj­un­ar­innar stendur mun störfum fjölga tíma­bundið og heima­menn eflaust njóta góðs af. Í dag eru virkj­anir að mestu sjálf­virkar og veita fáum atvinnu eftir að bygg­ingu virkj­unar er lokið. Fjölgun starfa til lengri tíma í Árnes­hresppi verður því óveru­leg.

Verði af virkjun munu sam­göngur í nágrenni Norð­ur­fjarðar batna, sér­stak­lega frá höfn­inni til Ófeigs­fjarðar. Vegurinn frá Hólmavík til Norð­ur­fjarðar, sem er helsti flösku­háls­inn í sam­göngu­málum Árnes­hrepps, mun hins vegar taka litlum breyt­ingum. Þennan veg þarf að upp­færa og það er á ann­arra höndum en HS Orku að gera það. Þessi vegur hefur verið á sam­göngu­á­ætlun svo ára­tugum skiptir og alþing­is­mönnum og ráð­herrum ætti að vera löngu ljóst hversu brýnt er að hann sé lag­færður. Íbúar Árnes­hrepps eru hins vegar aðeins tæp­lega 50 atkvæði og eru því afskiptir þegar kemur að fjár­veit­ingum til vega­gerðar.

Þriggja fasa rafmagn er ekki forgangsatriði

Það eru helst ísvélar í frysti­hús­inu á Norð­firði sem gætu haft not af slíku raf­magni, en rekstur slíkra véla má leysa með öðrum hætti en virkjun Hvalár. Ljós­leið­ari yrði eflaust kær­kom­inn fyrir íbúa Norð­ur­fjarðar og nágrennis en lof­orð for­svars­manna virkj­un­ar­innar um lagn­ingu ljós­leið­ara eru þó engan veg­inn föst í hendi, enda ekki ljóst með hvaða hætti slíkur leið­ari yrði lagður frá virkj­un­inni. Eðlilegt verður að telja að opin­berir aðilar sjái um að skaffa bæði ljós­leið­ara og þriggja fasa raf­magn, enda skilst mér að slíkar fram­kvæmdir séu ráð­gerðar á næstu árum. Ég get þó sjálfur vottað að á Norð­ur­firði og í nágrenni hans er ágætt 3G síma­sam­band og góð netteng­ing, – sem til dæmis er for­senda öfl­ugrar ferða­þjón­ustu.

Ferðamenn fíla ósnortin víðerni

Því er haldið fram að vegir að virkj­un­inni, meðal ann­ars frá Ísa­fjarð­ar­djúpi, muni auka ferða­manna­straum á Ströndum. Eflaust verður auð­veld­ara að kom­ast inn á svæðið, en ég efa þó stór­lega að ferða­menn flykk­ist til Ófeigs­fjarðar til að skoða þar mann­gerðar virkj­anir og stíflur. Stað­reyndin er sú að 80% ferða­manna sem sækja Ísland heim nefna sér­staka nátt­úru sem helstu ástæðu fyrir komu sinni – en hvorki virkj­anir né álver.

Ferða­manna­iðn­aður er nú stærsta atvinnu­greinin á Íslandi og skapar okkur meiri tekjur en bæði sjáv­ar­út­vegur og álbræðsla. Í nýlegri skýrslu bendir OECD á að nátt­úran og þá sér­stak­lega ósnortin víð­erni séu ein­hver mesta auð­lind sem Íslend­ingar eigi og þau beri að fara var­lega með. Í dag eru um 40% af yfir­borði lands­ins skil­greind sem ósnortin víð­erni, en þau hafa minnkað um 70% á síð­ustu 70 árum. Stærstu ósnortnu víð­ernin er að finna á mið­há­lend­inu og á Vest­fjörðum, aðal­lega á Horn­ströndum en líka á Ströndum upp af Hvalá. Hval­ár­virkjun mun rýra víð­erni Vestjarða­kjálkans um 18–36%, allt eftir því hvernig reiknað er. Síðari talan er senni­lega nærri lagi þegar tekin eru með sjón­ræn áhrif af háspennu­línum og vegum tengdum þeim. Línurnar munu kljúfa víð­ernin í tvennt og umferð um veg­ina spilla þeirri ein­stöku kyrrð sem þarna ríkir.

„Stærstu ósnortnu víð­ernin er að finna á mið­há­lend­inu og á Vest­fjörðum.“

Sérlega óheppi­legt er að virkj­unin er í næsta nágrenni við friðlandið á Horn­ströndum, en það svæði var frið­lýst árið 1975 og er ákvörðun sem ég held að svo til allir Íslend­ingar séu afar stoltir af. Það er skoðun mín að í stað Hval­ár­virkj­unar ætti frekar að stækka núver­andi friðland á Horn­ströndum þannig að það næði suður fyrir Ing­ólfs­fjörð. Um leið myndu Ófeigs­fjörður en einnig Jök­ul­firð­irnir og Snæfjalla­ströndin vera inn­ann friðlands­ins. Virkj­ana­fram­kvæmdum á þessu sér­staka og ósnortna svæði yrði þar með ýtt út af borð­inu – kom­andi kyn­slóðum til hags­bóta.

Rafmagn sem vantar til Vest­fjarða yrði þá að fram­leiða ann­ars staðar á land­inu og flytja vestur, án veru­legs tengi­kostn­aðar eins og í dag. En til þess að tak­ist að stækka friðlandið þurfa ráða­menn að sýna sömu djörf­ung og kollegar þeirra á Alþingi sem sam­þykktu frið­lýs­ingu Horn­stranda á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. 

Hvalárvirkjun er skammgóður vermir

Vandamál Vest­fjarða verða ekki leyst með virkjun Hvalár og því miður er til­finn­ing mín að verið sé að plata Vest­firð­inga. Nær­tækara og skyn­sam­legra er að leggja frekar áherslur á bættar sam­göngur og sann­gjarn­ari byggða­kvóta til fisk­veiða en virkja ósnortna nátt­úruperlu.

Fækkun íbúa á Vest­fjörðum hefur minnkað tekjur sveit­ar­fé­laga sem í óða­goti eiga til að grípa til van­hugs­aðra ákvarð­ana eins og að virkja vatns­fljót, sem vissu­lega er það stærsta á Vest­fjörðum, sem um leið skapar stór­kost­lega fossa og gljúfur á ósnortnum öræfum við þrösk­uld­inn á friðland­inu á Horn­ströndum. Þetta svæði er miklu meira virði ósnortið en virkjað og mun nýt­ast kom­andi kyn­slóðum Vest­firð­inga betur, líkt og lands­mönnum öllum. Þegar fót­kuldi sækir að er freist­andi að pissa í skó­inn. Sá varmi er þó tíma­bund­inn og lyktin vond.

Nátt­úru­feg­urð er óvíða meiri en á Vest­fjörðum og tæki­færi tengd ferða­mennsku ótelj­andi. Frekari áhersla á auk­inn straum ferða­manna er því lyk­il­at­riði. Að virkja ósnortin víð­erni – sem eru ein­stök á heims­vísu – er ekki góð byrjun.

Mið­næt­ur­sól í Ing­ólfs­firðiÞegar farið er út í Ófeigs­fjörð er ekið eftir þessum firði endi­löngum á jeppa­slóða, en þarna eru spenn­andi rústir gam­allar síld­ar­verk­smiðju.

Virkjun Hvalár:

Hvaða náttúruperlur verða undir?

Öræfin upp af Ófeigs­firði og Eyvind­ar­firði eru ein­stök. Þarna eru grasi grónar heiðar með smáum tjörnum sem eru bæki­stöð fugla. Ótelj­andi fossar og flúðir í ánum Rjúkanda, Hvalá og Eyvind­ar­fjarð­ará eru þó helstu nátt­úruperlurnar. Þar má helst nefna Rjúkandi­foss í ánni Rjúkanda, fossa­röð­ina í Eyvind­ar­fjarð­ará og Drynj­andi í Hvalá áður en hún sam­ein­ast ánni Rjúkanda. Allir foss­arnir eru vatns­miklir með tæru og bláu vatni, en Hvalá er þar að auki mesta vatns­fall á Vest­fjörðum. Við virkjun Hvalár mun foss­inn Drynj­andi þurrkast alveg upp og vatns­magn í hinum foss­unum tveimur minnka um 40–70%. Fossinn Rjúkandi dregur nafn sitt af miklum úða sem stígur upp af foss­inum þegar hann fellur niður fossaraðir ofan af Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Honum svipar óneit­an­lega til Gullfoss og eins og hann heldur áin Rjúkandi áfram í gljúfrum uns Hvalá, sem einnig er stór á, rennur í hann nokkrum km neðar, rétt neðan við foss­inn Drynj­andi. Eftir það kall­ast sam­einað vatns­fall Rjúkandi og Hvalár, Hvalá, sem síðan rennur til sjávar í Ófeigs­firði. Ofanvið ósinn eru magn­aðir risa­vaxnir fossar, Hvalár­fossar, sem steyp­ast í nokkrum þrepum niður að ósnum. Eyvind­ar­ár­fossar renna í eins konar kletta­stokkum ofan af heið­unum sunnan Dranga­jök­uls og liggur leiðin marga km leið niður í Eyvind­ar­fjörð. Eyvind­ar­ár­fossar eru ein­stök fossa­röð sem er ekki hvað síst til­komu­mikil séð af sjó. Þessi fossa­röð er jafn­fram sú sem heima­mönnum þykir hvað vænst um enda ljóst að þeir munu að mestu leyti þorna.

Hvaða náttúruperlur eru í nágrenni Hvalárvirkjunar?

Þarna ber helst að nefna hin risa­vöxnu Dranga­skörð, sem eru vafa­laust ein fal­leg­asta nátt­úru­smíð á Íslandi. Í næsta nágrenni við Rjúkanda er Húsár­foss, en sjó­menn á Ströndum kalla hann mun fal­legra nafni, Blæju, sem hann minnir óneit­an­lega á. Ekki stendur til að virkja Blæju né heldur foss­inn rétt norðan við Hvalá sem heitir Dag­verð­ar­dalsár­foss. Frá honum er ekki ýkja langt í firð­ina norðan Dranga­skarða þar sem helst má nefna Dranga­vík, Meyj­ar­dal, Bjarn­ar­fjörð og Skjald­barn­ar­vík, og Reykj­ar­fjörð nyrðri. Suður af fyr­ir­hug­aðri Hval­ár­virkjun er enn einn fal­legur fjörður, Ing­ólfs­fjörður, og aðeins austar Norð­ur­fjörður. Upp af öræfum Ófeig­fjarð­ar­heiði er Dranga­jök­ull sem er fimmti stærsti jök­ull lands­ins, og suður af honum ótelj­andi vötn og ár. 

Hvernig er komist að þessum náttúruperlum?

Ótrúlega fáir Íslend­ingar hafa séð foss­ana og gljúfrin sem verða undir verði Hval­ár­virkjun að veru­leika, ein­fald­lega vegna þess hversu erfitt er að kom­ast að þeim akandi. Fyrst er ekið í Norð­ur­fjörð en þangað er tæp­lega 5 klst. akstur frá Reykja­vík. Frá Norð­ur­firði tekur tæpa klst. að aka inn í botn Ófeigs­fjarðar, en þar er lítið tjald­stæði. Á vel búnum jeppa er hægt að keyra yfir vað á Húsá (mæli með efra vað­inu) að Hvalár­fossum. Þaðan er upp­lagt að ganga nokkra kíló­metra með­fram stór­feng­legum gljúfrum sam­einaðrar Hvalár og síðan áfram eftir ánni Rjúkandi. Fyrst er komið að foss­inum Drynj­andi, en verður að virða fyrir sér úr fjar­lægð þar sem hann er hinum megin við bakka Hvalár. Fossinn Rjúkanda sem steyp­ist ofan í gljúfrin nokkrum km ofar, er auð­velt að skoða í návígi. Frá Rjúkanda er upp­lagt að ganga að foss­inum stór­kost­lega Blæju í Húsá. Frá Blæju er síðan hægt að ganga eftir akveg­inum aftur að Hvalár­fossum, en þessi ganga, sem er eins konar hringur, tekur í heild í kringum 4–5 klst. Hægt er að kom­ast nær Drynj­anda með því að halda yfir göngu­brúna á Hvalá við Hvalár­fossa. Síðan er gengið í rúma klst. að foss­inum með­fram nyrðri barmi Hvalár­gljúfra. Til að kom­ast að Dag­verð­ar­dalsár­fossi og Eyvind­ar­fjarð­ar­ár­fossum er haldið í norður frá göngu­brúnni við Hvalár­fossa og tekur gangan að síð­ar­nefndu foss­unum tæpar 3 klst. Eyvind­ar­ár­fossar eru sér­lega til­komu­miklir og hægt að kom­ast yfir þá á göngu­brúm. Hægt er að ganga upp með Eyvind­ar­fjarð­ará og virða fyrir sér enn fleiri til­komu­mikla fossa í þess­ari kröft­ugu og vatns­miklu á. Síðan er gengin sama leið aftur til baka í Ófeigs­fjörð, nema ef ákveðið er að halda áfram með allt á bak­inu að Drangár­skörðum, og tekur það nokkrar klst. Þaðan er upp­lagt að ganga áfram yfir Dranga­vík að Dröngum norðan við Skörðin, þaðan yfir Meyj­ar­dal í Bjarn­ar­fjörð, Skjald­bjarn­ar­vík og Reykja­fjörð nyrðri. Úr Reykj­ar­firði er síðan hægt að taka bát aftur til Norð­ur­fjarðar. Þetta er stór­kost­leg ganga og tekur nokkra daga með allt á bak­inu.

Hvalár­fossarHvalár­fossar rétt áður en Hvalá steyp­ist út í ós Ófeigs­fjarðar. Þessir fossar eru þeir vatns­mestu á Vest­fjörðum og ekki hægt annað en að hríf­ast af kraft­inum og blá­tæru vatn­inu. Til stendur að koma stöðv­ar­húsi virkj­un­ar­innar ofan við Hvalár­fossa en spurn­ingin er hvaða áhrif það mun hafa á rennsli í þessum mögn­uðu fossum.
Hvalár­fossarHægt er að kom­ast að Hvalár­fossum Í Ófeigs­firði á vel útbúnum jeppa en þá þarf að aka yfir vaðið á Húsá.
Hvalár­fossarEfri hluti Hvalár­fossa í mið­næt­ur­sól.
Dag­verð­ar­dalsár­fossNorður af Hvalár­fossum er þessi lítt þekkt en snotri foss, Dag­verð­ar­dalsár­foss, sem einnig rennur út í Ófeigs­fjörð. Rennsli í þessum fossi mun ekki skerð­ast verði af virkjun.
Fossa­röðin í Evind­ar­fjarð­aráSyðri hluti fossar­að­ar­innar í Eyvind­ar­fjarð­ará, rétt áður en hún steyp­ist út í sam­nefndan fjörð. Kraft­ur­inn er með ólík­indum og flúð­irnar mik­il­feng­legar í umhverfi sem er algjör­lega ósnortið, enda aldrei verið búið í Eyvind­ar­firði.
Eyvind­ar­ár­fossKraft­ur­inn í Eyvind­ar­ár­fossi er með ólík­indum og auð­velt að kom­ast gang­andi mjög nærri flúð­unum.
BlæjaFossinn Blæja (einnig kall­aður Húsár­foss) í ánni Húsa, rétt áður en hún rennur út í botn Ófeigs­fjarðar. Þessum fossi stendur til að hlífa verði af virkjun, en hann á a.mk. fjögur “fossa-syst­kyni” sem eru í næsta nágrenni.
Dranga­skörðEkki ýkja langt frá fyr­ir­hug­uðu virkj­ana­svæði upp af Ófeigs­firði er ein stór­kost­leg­asta nátt­úrú­smíð á Íslandi, Dranga­skörð.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár