Umhverfis- og orkustofnun telur hverfandi líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu norðaustur af Íslandi. Meiri líkur séu á að kolvetni hafi varðveist norðar á Jan Mayen-hryggnum, norður af Drekasvæðinu. Stofnunin telur því ekki forsendur fyrir því að auglýsa eftir umsóknum um ný leyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis miðað við núverandi aðstæður og þekkingu.
Þetta kemur fram í greinargerð stofnunarinnar sem birt var í dag. Hún byggir á yfirferð rannsókna fyrri leyfishafa, sjálfstæðu mati ÍSOR og öðrum rannsóknum á svæðinu. Þótt líkurnar séu taldar hverfandi hefur ekki verið sýnt fram á að engin olía eða gas sé á Drekasvæðinu eða Jan Mayen-hryggnum í heild.
Viðskiptaráð endurvakti umræðuna
Það var Viðskiptaráð sem endurvakti umræðuna um Drekasvæðið með greiningu sem birtist síðasta vetur. Þar var gagnrýnt að íslensk stjórnvöld byðu ekki út sérleyfi til olíurannsókna og vinnslu og talað um „ævintýralegan ávinning“ ef olía fyndist.
Fyrri …





















































Athugasemdir