Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary

Forysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Birgir Þór­ar­ins­son, fyrr­ver­andi þing­maður, fund­uðu með íhalds­sömum hug­veitum og mæltu fyrir frí­versl­un­ar­samn­ingi.

Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary
Banda­ríkja­ferð Jens Garðar Helgason, vara­for­maður Sjá­fl­stæð­is­flokss­ins, Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður ásamt Birgi Þór­ar­ins­syni, fyrr­ver­andi þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Zachary Freeman. Með þeim er aðstoð­ar­maður Guðrúnar, Árni Grétar Finnsson, sem stendur lengst til hægri. Mynd: Garrett Hanson

Formaður og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Birgir Þór­ar­ins­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fund­uðu með banda­rískri hug­veitu fyrr­ver­andi vara­for­seta Banda­ríkj­anna, Mike Pence, um miðjan sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Með þeim til halds og trausts var Zachary Freeman, sem hefur vakið athygli fyrir störf sín sem umboðs­maður breska þing­manns­ins Nigel Farage í Banda­ríkj­unum. Zachary hefur séð um að leiða saman þing­for­ystu Mið­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins við póli­tískar hug­veitur í Banda­ríkj­unum, en Mið­flokk­ur­inn hitti meðal ann­ars for­svars­fólk Heritage Foundation á síð­asta ári að und­ir­lagi Zachary Freeman. Sú hug­veita er afar umdeild út af höf­uð­plaggi sínu, Project 2025, og þjóð­ern­issinn­uðum við­horfum. Veitan þykir sér­stak­lega höll undir sjón­ar­mið for­seta Banda­ríkj­anna, Donald Trump.

Sig­mundur, Zachary og GuðrúnZachary hefur verið ötull að leiða saman íslenska stjórn­mála­leið­toga á hægri vængnum við íhalds­samar hug­veitur og ráða­fólk í Washington.

Fyrr­nefndur Zachary komst í frétt­irnar í Bret­landi á síð­asta ári þegar í ljós kom að félag hans, …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinunn Ósk Guðmundsdóttir skrifaði
    Sjálfstæðisflokkurinn er að daðra við öfl í Bandaríkjunum sem vilja afnema öll réttindi kvenna, líka kosningaréttinn. Ekki gæfulegt.
    6
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Undirlægjuháttur Sjálfstæðisflokksins gagnvart bandarískum hagsmunaaðilum er greinilega mjög mikill.
    Ekki er minnst á að verið sé að afsala sér fullrétti eða sjálfstæði eins og hamrað var ótæpilega á í hræðsluáróðri gegn Evrópusambandinu. Þeir vildu vara þjóðina við að afsala sér fullveldi og sjálfstæði til Evrópusambandsins þó svo að ekkert land hefur fram að þessu þurft að sjá eftir öðru hvað þá hvoru tveggja.
    Evrópusambandið byggist á mjög víðtæku samstarfi allra aðildarþjóða þar sem mannréttindi og borgaraleg réttindi eru höfð í fyrirrúmi.
    Harðsvíraðir bandarískir hagsmunaaðilar munu eiga auðvelt með að leggja undir sig Ísland fari fram eins og virist vera í herbúðum íhaldsmanna.
    Fyllsta ástæða er að líta á þessa viðleitni íslenska íhaldsins með vaxandi tortryggni.
    10
  • Magni Hjálmarsson skrifaði
    Ég þarf að fá betri útskýringu á því hvað "hugveita" er.
    2
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    þar hitti andskotinn ömmu sína
    6
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég veit ekki hvort mér þykir verra með fólk sem hefur komist þetta hátt í okkar samfélagi, hvort þau gera sér ekki grein fyrir því hverskonar öfl þau eru að daðra við, eða gera þau sér akkúrat grein fyrir því. Hvort tveggja segir töluverða sögu um viðkomandi.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár