Sár vonbrigði á tímum mikilla breytinga

Formað­ur Blaða­manna­fé­lags Ís­lands seg­ir það von­brigði að sjón­varps­frétt­ir Sýn­ar hafi ver­ið lagð­ar nið­ur. Hún seg­ir mik­il­vægt að al­menn­ing­ur ger­ist áskrif­end­ur að ís­lensk­um frétt­um.

Sár vonbrigði á tímum mikilla breytinga
Formaður blaðmannafélags Íslands Sigríður Dögg Auðunsdóttir segir það vonbrigði að framleiðslu á sjónvarpsfréttum sé hætt hjá Sýn. Mynd: Press.is

„Þetta eru sár vonbrigði, þótt þetta komi ekki endilega á óvart,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, um ákvörðun stjórnenda Sýnar að leggja niður framleiðslu á sjónvarpsfréttahluta Sýnar. Þetta eru umfangsmiklar breytingar í íslensku fjölmiðlalandslagi sem hefur verið að dragast saman undanfarinn áratug og er svo komið að það er aðeins ein sjónvarpsfréttastofa eftir, sem er hjá Ríkisútvarpinu. Blaðamannafélagið hefur fengið tilkynningu um ákvörðunina en ekki liggur fyrir hversu mörgum hefur verið sagt upp á fréttastofunni.

„Þetta er ferðalag sem Sýn var þegar lagt af stað með,“ segir Sigríður Dögg en það slitnaði upp úr samningaviðræðum Sýnar við Símann fyrir skömmu þar sem allir fréttamiðlarnir voru boðnir til sölu nema sjónvarpsfréttahlutinn.

Sjónvarpsfréttir með meira traust

„Við vorum vongóð um að þau sæju tækifærið í að halda áfram, en að sjá félagsmenn okkar missa vinnuna er ömurlegt,“ segir Sigríður.

Hún segir þetta þróun sem sé að gerast víða. „Stjórnvöld hafa …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár