Jökulhrun olli hamförunum í Nepal

Flóð skall á og þurrk­aði út þorp og bæði í Nepal og Tíbet. Mynd­band sýn­ir fólk á landa­mæra­stöð reyna að hlaupa und­an flóð­inu. Minnst 273 lét­ust og hundruða er sakn­að. Nú er tal­ið er að jök­ul­hrun hafi vald­ið ham­förun­um.

Stór ísmassi féll úr fjöllunum í Nepal, nærri Tíbet, 5.200 metra niður í á þar fyrir neðan, sem gæti það hafa hrundið af stað hamförum í Nepal og Tíbet. 

Öflugt flóð brast á sem sópaði heilu þorpunum á brott og olli bana minnst 273 einstaklinga. Hundruða til viðbótar er saknað. 

„Stór hluti jökuls féll úr um 5.200 metra hæð ... niður í dal,“ sagði Simon Cox, aðalvísindamaður GNS Science á Nýja-Sjálandi við AFP. Ísmassinn hafi „breyst í ofsafenginn massa af aur og braki ... sem hrífur með sér grjót, set, tré og allt sem á vegi hans verður og þeytir því áfram niður gljúfrið.“

Að morgni miðvikudags þutu gríðarlegir straumar vatns, aurs og braks niður dali beggja vegna landamæranna og skall fyrst á landamærastöð. Ógnvekjandi upptökur úr öryggismyndavélum sýna aur og brak gleypa svæðið á meðan fólk reynir skelfingu lostið að flýja undan flóðinu. 

Flóðið hélt síðan áfram niður …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Efnahagslegur ávinningur „blasir við“
6
EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­leg­ur ávinn­ing­ur „blas­ir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­band­ið og hvað mynd­um við fá til baka? Gylfi Magnús­son, pró­fess­or í hag­fræði, fer yf­ir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætl­að er að nettófram­lag Ís­lands gæti ver­ið á bil­inu sex til 15 millj­arð­ar á ári, en pró­fess­or­inn tel­ur efna­hags­leg­an ávinn­ing meiri en út­gjöld­in.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
6
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár