„Sósíalisti“ sigrar óvænt í Flórída

Óvænt úrslit urðu í for­vali Demókra­ta­flokks­ins í Flórída fyrir kosn­ingar til öld­unga­deild­ar­innar, þar sem demókrat­ískur sós­í­alisti vann.

„Sósíalisti“ sigrar óvænt í Flórída
Fram­bjóð­andi Demókrata Angie Nixon, fram­bjóð­andi demókrata til öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings og full­trúa­deild­ar­þing­maður Flórída, bíður eftir að ávarpa söfn­uð­inn í Ebenezer Mission­ary baptista­kirkj­unni þann 17. ágúst 2026 í Hallandale Beach í Flórída. Mynd: AFP

Vinstri armur Demókra­ta­flokks­ins fagn­aði í dag nýjasta óvænta sigri sínum í for­vali fyrir kosn­ingar í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings í Flórída. Þar með hélt sig­ur­ganga upp­reisn­ar­manna áfram í heima­ríki Donalds Trumps for­seta, þar sem kjós­endur höfn­uðu nokkrum fram­bjóð­endum repúblik­ana sem hann studdi í öðrum for­völum.

Angie Nixon, sem er þing­maður í full­trúa­deild þings­ins í Flórída, sigr­aði Alex­ander Vindman, fyrr­ver­andi emb­ætt­is­mann í þjóðar­ör­ygg­is­málum, sem þótti mun sig­ur­strang­legri, í bar­átt­unni um til­nefn­ingu til að keppa fyrir hönd demókrata um sætið sem repúblikanar halda í nóv­em­ber. Í sæt­inu er nú Ashley Moodey, sem situr á digrum sjóðum fyrir kosn­inga­bar­átt­una, en hún tók sæti utan­rík­is­ráð­herr­ans Marcos Rubio þegar hann fór í rík­is­stjórn Donalds Trumps.

Um var að ræða for­val fyrir þing­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum sem verða í nóv­em­ber. Kosið verður um alla með­limi full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings og þá verður kosið um 34 af 50 emb­ættum rík­is­stjóra. Alls verður kosið um 33 af 100 sætum í öld­unga­deild …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Síðasta setning þessarar greinar er dálítið ruglingsleg. Hugsaði greinarhöfundur á öðru tungumáli en íslensku þegar hann skrifaði. Það væri sómi að lagfæra hana svo að hún væri skiljanleg fyrir almenning. Allt í góðu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár