Þriðji maðurinn í gæsluvarðhald

Lög­regl­an fór fram á það í gær­kvöldi að þriðji ein­stak­ling­ur­inn yrði hneppt­ur í gæslu­varð­hald vegna rann­sókn­ar á and­láti manns í Kópa­vogi. Dóm­ari féllst á það en fyr­ir höfðu tveir aðr­ir ver­ið úr­skurð­að­ir í varð­hald vegna máls­ins.

Þriðji maðurinn í gæsluvarðhald
Frá aðgerðum Lögreglan handtók einn í umfangsmiklum aðgerðum við Gnoðavog í Reykjavík. Árásin átti sér stað í Kópavogi. Mynd: BHJ

Þriðji maðurinn var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á andláti manns í Kópavogi. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn gildir til 14. ágúst í tengslum við málið.

Í tilkynningu lögreglu vegna úrskurðarins er sérstaklega tekið fram að viðkomandi sé erlendur ríkisborgari.

Fyrr um daginn höfðu tveir menn, annar íslenskur, hinn erlendur ríkisborgari, verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald grunaðir um að hafa ráðist á mann í Kópavogi á fimmtugsaldri. Annar maðurinn var úrskurðaður í varðhald til 21. ágúst en hinn til 17. ágúst.

Sá lést af sárum sínum eftir árásina.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár