Myrkur í ágúst 5 — „Dark Side of the Moon“

Tunglið fjar­lægist sífellt, báðar hliðar þess. En mun það hverfa okkur end­an­lega?

Myrkur í ágúst 5 — „Dark Side of the Moon“
Laug­ar­dals­laugin í Reykja­vík. Frá því að land­nám Íslands hófst hefur Tunglið fjar­lægst Jörðina um sem nemur tæp­lega lengd þess­arar góðu sund­laugar. Hugsið um það næst þegar þið þreytið sundið!

Þar var síð­ast komið sögu Tungls­ins að það var orðið til.

Og miklu nær Jörðinni en nú er, líkt og sagði frá í síð­ustu grein.

Hana er hér að finna.

Þá sner­ist Tunglið líka mun hraðar um möndul sinn en nú er og ef ein­hver hefði verið á Jörðinni til að fylgj­ast með Tunglinu hefði sá fengið að sjá allt yfir­borð þess hring­snú­ast.

En hið sterka aðdrátt­ar­afl Jarðar tók brátt að verka mjög á Tunglið og aflag­aði það svo það varð brátt örlítið egg­laga en ekki full­komin kúla. Þessi egg­lögun er svo lítil að hún sést ekki (nema með mæli­tækjum) en dugði til að draga úr snún­ingi Tungls­ins um möndul sinn.

Smám saman hægði á snún­ingi þess þar til Tunglið sner­ist nákvæm­lega einu sinni um sjálft sig á hverri hring­ferð sinni um Jörðina.

Af hverju ætíð sama hliðin?

Hvort tveggja tekur tæp­lega 28 sól­ar­hringa miðað við fasta­stjörn­urnar. 

Og þess vegna sjáum við alltaf sömu hlið Tungls­ins.

Þetta er kallað „sjáv­ar­falla­læs­ing“ og flest bendir til þess að hún hafi náðst mjög snemma, lík­lega innan nokk­urra tug­millj­óna ára frá því Tunglið varð til, hugs­an­lega jafn­vel innan 10–30 millj­óna ára.

Það er örskammur tími á mæli­kvarða sól­kerf­is­ins.

Þótt sú hlið Tungls­ins sem við sjáum ekki sé stundum kölluð „hin dimma hlið Tungls­ins“ þá fer því vita­skuld fjarri að sú hlið sé að nokkru ráði dimmari en hliðin sem að okkur snýr. Hún er jafn oft og mikið böðuð sól­ar­ljósi og „okkar hlið“ þótt hún missi að vísu af end­ur­skini frá Jörðinni.

En svo er annað.

Allt frá til­orðn­ingu Tungls­ins hefur það sem sé verið að fjar­lægj­ast Jörðina.

Tunglið fjarlægist sem nemur tæpri Laugardalslaug

Nú um stundir fjar­lægist Tunglið um 3,8 senti­metra á ári.

Það þýðir að á 80 ára mannsævi fær­ist það að með­al­tali um rétt rúm­lega 3 metra lengra frá Jörðinni. Það þarf því tíu mannsævir eða 800 ár til að Tunglið fjar­lægist okkur um sem nemur hæð turns­ins á Landa­kots­kirkju í Reykja­vík.

Og frá land­námi Íslands hefur Tunglið fjar­lægst Jörðina um sem nemur tæp­lega lengd Laug­ar­dals­laug­ar­innar sem er 50 metrar.

Mjög er afstætt hvort við teljum þetta mikla fjar­lægð eða litla en þar sem þessi þróun heldur áfram öld eftir öld í millj­ónir ára, þá skyldi maður ætla að aðdrátt­ar­afl Jarðar muni á end­anum sleppa taki sínu af Tunglinu og það svífi þá sína leið, eitt og yfir­gefið.

En sú mun þó ekki vera raunin. Eftir því sem Tunglið fjar­lægist hægist um leið á „fjar­læg­ing­unni“ og einnig mun hægj­ast á snún­ingi Jarðar um möndul sinn.

Það mun samt aldrei gerast

Að lokum munu Jörðin og Tunglið ná svo­kall­aðri „tvö­faldri sjáv­ar­falla­læs­ingu“. Tunglið mun þá áfram snúa ávallt sömu hlið að Jörðinni en Jörðin mun þá líka snúa ávallt sömu hlið að Tunglinu.

Sól­ar­hring­ur­inn og umferð­ar­tími Tungls­ins yrðu jafn­löng, lík­lega um 47 núver­andi sól­ar­hringar. Þá hættir Tunglið í meg­in­at­riðum að fjar­lægj­ast.

Já, þið lásuð rétt. Einn sól­ar­hringur á Jörðu mun þá verða sem nú nemur rúm­lega sex vikum.

En í raun mun þetta samt aldrei ger­ast. Ástæðan er sú að þessi þróun er svo hæg að hin „tvö­falda sjáv­ar­falla­læs­ing“ mun ekki nást fyrr en eftir 50 millj­arða ára og sól­kerfið okkar í núver­andi mynd verður þá löngu liðið undir lok.

Hvort heldur okkur líkar betur eða verr.

Nú um stundir fjar­lægist Tunglið um 3,8 senti­metra á ári
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár