Myrkur í ágúst 4 — Máninn hátt á himni skín

Tunglið var miklum mun stærra, frá okkur séð, í eld­gamla daga en nú.

Myrkur í ágúst 4 — Máninn hátt á himni skín
Þegar Tunglið var nýorðið til leit það svona út frá Jörðu séð. Tunglið var þá að vísu rauð­gló­andi að mestu og Jörðin sömu­leiðis.

Tunglið varð til í grein­inni í gær.

Hérna er hlekkur á hana.

Það varð til úr rusli sem hent­ist út í geim þegar plánetan Theia rakst á Jörðina og eyddi með því sjálfri sér.

Reyndar er til sú kenn­ing að tunglin hafi upp­haf­lega verið tvö, mjög mis­stór og hið minna hafi á end­anum (það er að segja fljót­lega) hrapað niður á hið stærra. Þetta er til­raun til að skýra hvers vegna hin fjar­læg­ari hlið Tungls­ins er svo ólík nær­hlið­inni og hefur víða miklu þykk­ari skorpu – en kenn­ingin hefur ekki öðl­ast almennt fylgi vís­inda­manna.

Ekki enn að minnsta kosti.

Svo við segjum að það hafi bara alltaf verið eitt á ferð.

En hví­líkt Tungl!

Miklu nær Jörðinni

Þegar það var nýorðið til var það miklu nær Jörðinni en núna og virt­ist þar af leið­andi miklu stærra en við eigum að venj­ast.

Núna er Tunglið í að með­al­tali 384.400 kíló­metra fjar­lægð frá Jörðu. Það væri hægt að raða öllum plánetum sól­kerf­is­ins – þar á meðal öllum gas­ris­unum fjórum – í það svæði. 

Ef Jörðin væri á stærð við körfu­bolta, þá væri Tunglið eins og tenn­is­bolti sem sner­ist um körfu­bolt­ann í um það bil 7,4 metra fjar­lægð.

Í þessu dæmi væri því ein og hálf Toyota Corolla milli körfu­bolt­ans og tenn­is­bolt­ans, Jarð­ar­innar og Tungls­ins.

En þarna í fjarska dag­anna þegar Tunglið var nýorðið til, þá var það lík­lega aðeins í um 24.000 kíló­metra fjar­lægð frá Jörðinni.

Og ef við miðum við körfu­bolta og tenn­is­bolta, þá væri tenn­is­bolt­inn í ekki nema rétt­lega 45 senti­metra fjar­lægð frá miðju körfu­bolt­ans. Milli yfir­borðs Tungls­ins og yfir­borðs Jarðar væri aðeins 30 senti­metrar eða tæp­lega það.

Frá yfir­borði Jarðar væri Tunglið að sjá allt að 20 sinnum breið­ara að þver­máli en það er nú.

Miklu, miklu stærra en Sólin. 

Tunglið á ofsahraða

Bæði Jörðin og Tunglið sner­ust þá líka miklu hraðar en núna.

Hver sól­ar­hringur á Jörðu var ekki nema 5–6 klukku­tímar.

Og Tunglið fór einn hring um Jörðina á 10–12 klukku­stundum.

Þetta þýddi ýmis­legt.

Maður skyldi til dæmis ætla að Tunglið hlyti að falla niður á Jörðina úr því þau voru svo nálægt hvort öðru en vegna þess hve Tunglið var á geysi­legum hraða tók það að þeyt­ast svona í kringum Jörðina í stað­inn.

Braut­ar­hraði þess var (og er) slíkur að það féll sífellt fram­hjá Jörðinni.

En um leið hafði aðdrátt­ar­afl Tungls­ins í árdaga gríð­ar­leg áhrif á yfir­borð Jarðar – og öfugt.

Það hefði verið sjón að sjá flóð og fjöru, ef ein­hvers staðar hefði þá verið fljót­andi vatn.

Kílometra munur á flóði og fjöru?

Fræði­legur með­al­munur á flóði og fjöru á Jörðinni er nú um 72 senti­metrar en hefði hugs­an­lega verið mörg hund­ruð metrar og jafn­vel heill kíló­metri þegar Tunglið var sann­ar­lega nýtt.

En nálægð Tungls­ins þýddi líka að sól­myrkvar voru bæði tíð­ari og meiri en nú þekk­ist.

Það er vissu­lega erfitt að segja en giska má á að almyrkvar á sólu hafi orðið jafn­vel á nokk­urra ára fresti á hverjum stað á Jörðinni, ekki á ára­tuga eða alda fresti eins og nú.

Fólk hefði lík­lega ekki lagt á sig ferða­lög heims­hluta á milli eða verið til í að borga okur­prís fyrir Airbnb-íbúðir í Reykja­vík til að sjá sól­myrkva ef þeir hafa verið svo algengir.

En hitt þarf ekki að giska á, að almyrkvarnir hafa verið miklu til­komu­meiri en nú.

Þeir stóðu þá ekki í neinar 1–2 mín­útur.

Hálftíma, takk fyrir, hálf­tíma.

Kannski lengur.

Svona lítur Tunglið frá Reykja­vík nú um stundir.

Frá yfir­borði Jarðar væri Tunglið að sjá 20 sinnum stærra en nú
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár