Myrkur í ágúst 3 — Tunglið verður til

Sól­myrk­vinn 12. ágúst verður þegar tunglið skyggir á sól­ina. En hvernig varð þetta tungl til?

Myrkur í ágúst 3 — Tunglið verður til
Ægilegur árekstur í geimnum skóp Tunglið. Tölvu­gerð mynd.

Jörðin varð til.

Um það var fjallað í gær, hérna.

Skömmu síðar, kannski 30 millj­ónum ára seinna (já, það er „skömmu síðar“ á mæli­kvarða sól­kerf­is­ins), þá var svona um að lit­ast á yfir­borði hennar:

Stærstur hluti yfir­borðs­ins var bráðið eða hálf­bráðið hraun. Sums staðar skorpn­aðar „eyjar“ á sveimi um kviku­hafið. Ekki stórar, kannski á við Ísland eða ívið stærri. Víða óstjórn­leg eld­gos. Him­inn­inn senni­lega rauð­gulur eða gul­brúnn. Stöðug skot­hríð loft­steina frá árdögum sól­kerf­is­ins.

Þunnur loft­hjúpur úr ýmsum gas­teg­undum sem flestar byrj­uðu á kol- eða brenni­steins-.

Ekkert tungl!

Ekki líf­væn­legt þarna, nei.

Og ekk­ert tungl á himni.

En þarna kemur önnur pláneta og nálg­ast. Hún hét ekk­ert frekar en Jörðin en við köllum hana núna Theiu.

Hún varð til um sama leyti og Jörðin og fleiri plánetur sem hring­snú­ast um sól­ina í innra sól­kerf­inu en nú hefur eitt­hvað hrakið hana af braut sinni.

Kannski aðdrátt­ar­afl Júpíters þó óra­fjarri sé, kannski trufl­anir frá Jörðinni sjálfri og Venusi og ein­hverri plánetu sem nú er horfin.

Hvað sem því líður, Theia nálg­ast.

Hún er minni en Jörðin, lík­lega á stærð við Mars.

Rétt rúm­lega helm­ingur Jarðar að þver­máli.

Og þarna kemur hún!

Yfirborðið bráðnar

Árekst­ur­inn verður rosa­legur. Allt yfir­borð Jarðar bráðnar á and­ar­taki þegar Theia gengur djúpt í hana og sundr­ast um leið. Gríð­ar­legt efn­is­magn úr báðum plánetum þeyt­ist út í geim­inn. Jörðin gengur í bylgjum en að lokum tekur yfir­borðið að róast.

Og þá gefur á að líta – ef ein­hver væri þá til að líta á.

Jörðin hefur bein­línis gleypt stóran hluta Theiu og er nú orðin heil­miklu patt­ara­legri en hún var. Allt yfir­borðið nátt­úr­lega rauð­gló­andi eftir ham­far­irnar.

Og kringum Jörðina sveimar heill hringur af sund­ur­tættu bráðnu bergi bæði úr Jörðinni og Theiu eftir árekst­ur­inn. 

Jörðin virð­ist vera með hring um sig miðja, ekki ósvipað og Satúrnus nú á dögum.

En viti menn.

Á ótrú­lega skömmum tíma rennur allt þetta efni saman í eina stóra kúlu og hring­ur­inn hverfur. 

Kúlan er vita­skuld tunglið.

Ótrúlega skammur tími

Þetta gerð­ist ekki á neinum millj­ónum ára, hægt og virðu­lega, ef þið haldið það.

Nei, tunglið gæti hafa orðið til á bara fimm­tíu árum!

Svo hljóðar djarfasta kenn­ingin en sumir vís­inda­menn telja raunar að það hafi gerst á nokkrum öldum.

Hvort heldur er: á ótrú­lega skömmum tíma.

En þarna var tunglið okkar sem sé komið.

(Hér má sjá hug­mynd um hvernig þetta gerð­ist.)

En frá Jörðinni séð var það ansi ólíkt því sem það er núna.

Frá því segir á morgun.

Allt yfir­borð Jarðar bráðnar á and­ar­taki
Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár