Á meðan skærlitir flugdrekar svífa hátt yfir Burin, palestínsku þorpi á hernumda Vesturbakkanum, hlaupa börn yfir sólbakaða hlíð og fylgjast með sköpunarverkum sínum stíga til himins.
Fyrir aftan þau gnæfa hús með rauðum þökum í ísraelsku landnemabyggðinni Har Bracha yfir þorpinu fyrir neðan.
Byggðin var stofnuð árið 1983 og er talin ólögleg samkvæmt alþjóðalögum. Hún er ein af nokkrum landnemabyggðum sem umlykja Burin, þorp með nokkur þúsund íbúa.
Varað við árásum landnema
Á hverju sumri síðan árið 2009 hafa íbúar safnast saman á þessari hæð til að halda flugdrekahátíð á landi sem þeir segja að hafi að hluta glatast eftir að landnemar tóku það yfir.
„Ef við komumst ekki lengur að þessum jörðum geta flugdrekarnir okkar það“
„Við viljum segja landnemunum að þetta sé okkar land, þetta sé okkar himinn. Ef við komumst ekki lengur að þessum jörðum geta flugdrekarnir okkar það,“ sagði Ghassan Najjar, einn skipuleggjenda hátíðarinnar, í …



















































Athugasemdir