Málmar i í túrtöppum taldir skaðlausir

„Þó að snef­il­magn af málmum sé til staðar í túr­töppum, þá er magnið sem losnar við notkun of lítið til að valda skaða,“ segir mat­væla- og lyfja­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna, FDA. Ný rann­sókn sýnir að málmar eru undir leyfi­legu hámarki í ell­efu teg­undum af túr­töppum.

Málmar á borð við blý og arsen telj­ast nú undir mörkum í túr­töppum og því ekki talið að þau geti valdið skaða. Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn á vegum mat­væla- og lyfja­eft­ir­lits Banda­ríkj­anna, FDA. „Þó að snef­il­magn af málmum sé til staðar í túr­töppum, þá er magnið sem losnar við notkun of lítið til að valda skaða,“ sagði stofn­unin um nið­ur­stöð­una á mánu­dag.

Í rann­sókn­inni voru ell­efu teg­undir af túr­töppum, sem seldar eru í Banda­ríkj­unum, rann­sak­aðar. Nítján málm­teg­undir fund­ust í mis­miklum mæli í vör­unum en sextán þeirra þóttu vera af mæl­an­legum styrk. Hins vegar tald­ist engin þeirra vera yfir leyfi­legum mörkum.

Brugðist við fyrri rannsókn

Rannsókn FDA var gerð í kjöl­far þess að árið 2024 fund­ust málmar í sextán teg­undum túrtappa frá ólíkum fram­leið­endum í annarri banda­rískri rann­sókn. Munur var á því í hversu miklum styrk málm­arnir voru eftir teg­und túrtappa sem og hvaða málmar …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár