Bandaríkin nota fé og hótanir til að flytja fólk til Afríku

Roberto Mosquera er ætt­aður frá Kúbu en hefur búið í Flórída frá barn­æsku og var stuðn­ings­maður Trump, þar til hann var hand­tek­inn af ICE og sendur til Afríku. Í Afr­íku­ríkjum situr nú fjöldi manna í laga­legu svart­holi eftir að Banda­ríkin sömdu við ríki um að taka við þeim gegn vega­bréfs­á­rit­unum og pen­ingum.

Bandaríkin nota fé og hótanir til að flytja fólk til Afríku

Þetta byrj­aði með hót­unum Banda­ríkj­anna um að banna vega­bréfs­á­rit­anir fyrir fjölda Afr­íku­ríkja. Síðan fóru stjórn­völd í Washington að dreifa inn­flytj­endum frá öllum heims­hornum til álf­unnar, oft með pen­inga­greiðslum til stjórn­valda.

Hinn 43 ára gamli Pheap Rom frá Kambódíu end­aði í alræmdu örygg­is­fang­elsi í hinu smáa Esvatíní, sem er stjórnað með harðri hendi af Mswati III kon­ungi. „Ég skildi ekki hvers vegna mér var vísað til Afríku þar sem ég er frá Kambódíu,“ sagði hann við AFP.

Aðrir voru sendir til Lýð­stjórn­ar­lýð­veld­is­ins Kongó og Úganda. Enn aðrir hurfu af sjón­ar­svið­inu eftir að hafa verið sendir til Suður-Súdan þar sem stríð geisar.

Banda­ríkin nota bann við vega­bréfs­á­rit­unum og tak­mark­anir á Afr­íku­ríki til að þvinga þau til að taka við fólki frá öðrum löndum sem hluta af aðgerðum Donalds Trump gegn inn­flytj­endum, sögðu tveir fyrr­ver­andi emb­ætt­is­menn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við AFP.

Lög­fræð­ingar segja að brott­vís­uðu fólki hafi verið kastað …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár