Kirkjan mótmælir stofnun lands undir baðlón á Vestfjörðum

Þjóð­kirkj­an fer fram á að bæj­ar­yf­ir­völd á Ísa­firði end­urkalli ákvörð­un um stofn­un lóð­ar sem kirkj­an tel­ur sig eiga til­kall til. Til stend­ur að reisa baðlón á svæð­inu.

Kirkjan mótmælir stofnun lands undir baðlón á Vestfjörðum
Sólsetur við Önundarfjörð Vestfirðir reyna að treysta heilsársferðamennsku, meðal annars með nýju baðlóni. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Þjóðkirkjan gerir alvarlegar athugasemdir við stofnun lóðarinnar Hvítasands innan jarðarinnar Þórustaða í Önundarfirði, þar sem félag á vegum athafnafólksins Runólfs Ágústssonar og Áslaugar Guðrúnardóttur hyggst reisa glæsileg baðlón. Lóðin er í Önundarfirði og er deilan um landamerki á svæðinu ríflega aldargömul. Dómkvaddur matsmaður hefur verið fenginn til þess að úrskurða um þessa deilu sem má rekja til ársins 1909.

„Vonandi verður nú hægt að leysa þetta á næstunni,“ segir Eiríkur Guðlaugsson, lögmaður kirkjunnar, sem undirritar mótmæli kirkjunnar sem voru lögð fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar þann 30. júní síðastliðinn.

Langvarandi ágreiningur

Í greinargerð lögmannsins segir að bænum sé vel kunnugt um langvarandi ágreining sem hafi staðið á milli Holts, sem er kirkjujörðin, og Þórustaða um mörk jarðanna. Úr þeim ágreiningi hafi ekki enn verið skorið úr.

Teikningar af baðlóniHér má sjá teikningar sem finna má í gögnum bæjarins um baðlónið.

Í samtali við Heimildina segir Eiríkur að með því …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár