Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku

Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, sem hefur undanfarin ár starfað sem upplýsingafulltrúi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, deildi með vinum sínum á Facebook sögunni af því þegar hún fékk „tvö rothögg á einum örlagaríkum degi“. 

„Hér er lítil saga af því. Á fimmtudagsmorguninn, fyrir viku síðan í dag, lagði ég af stað hjólandi út í daginn. Ég var að rúlla yfir Kringlumýrarbrautina á grænum gönguljósum þegar ég var keyrð niður. 

Ég sá bílinn koma á fullri ferð og tíminn hægði á sér. Þegar höggið kom og meðan fluginu stóð hugsaði ég: „Ég er að lenda í slysi núna. Verð að vanda mig og lenda vel.“ Stórundarleg lífsreynsla. 

Nokkrum klukkustundum síðar, þar sem ég lá á bráðamóttökunni, komst ég að því að mér og nær öllu mínu frábæra og hæfileikaríka samstarfsfólki úr Ráðhúsinu hafði verið sagt upp störfum,“ skrifar hún. 

Nú kallar hún eftir gleðivekjandi efni á meðan hún reynir að jafna sig. „Ég er öll marin og blá frá toppi til táar, illa viðbeinsbrotin, mjög fjögur brotin rifbein og hluti tveggja hryggjarliða, þvertindarnir, eru brotnir. Svo fékk ég svokallað loftbrjóst og virkilega hressilegan heilahristing. Ég er ansi aum og löskuð en vá, hvað ég er þakklát fyrir að vera á lífi.“

Hún sé heppin að eiga góða batavon. Sem betur fer er hún umkringd góðu fólki sem hjálpar til og léttir lund. „Í þeim vinahópi er líka fólkið mitt hjá borginni, bæði í Borgartúninu og Ráðhúsinu. Ég vann á báðum stöðum og átti því óvenjustóran hóp vinnufélaga. Ef þið bara vissuð hvað það er margt frábært fólk að störfum þarna, fólk sem vinnur verk sín vel og af metnaði, notar bæði heila og hjarta til þess. Það er ekki öllum gefið. Mun sakna þess að vinna með þeim en á þau sem vini áfram.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    engum skal hlíft nema hann sé þóknanlegur íhaldinu þetta er hið skítlega eðli
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
1
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
5
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
3
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár