Kaffi með útsýni: Tveir gjörólíkir heimar blasa við ferðamönnum

Rétt við landa­mær­in að Norð­ur-Kór­eu stend­ur Star­buck-kaffi­hús á hæð með út­sýni. Ferða­menn flykkj­ast þang­að til þess að for­vitn­ast um þetta ein­angr­aða ríki, sem er að mestu lok­að um­heim­in­um.

Kaffi með útsýni: Tveir gjörólíkir heimar blasa við ferðamönnum

Andstæðurnar gætu varla verið meiri. Ferðamenn taka sjálfur, sötra Starbucks-kaffi og horfa yfir til eins einangraðasta ríkis heims. Slík er upplifunin á Starbucks-kaffihúsi í suðurkóresku borginni Gimpo, skammt frá landamærum Norður-Kóreu, þar sem andstæður kapítalisma og kommúnisma blasa við gestum.

Kaffihúsið, sem opnaði í nóvember 2024, stendur á hæð við útsýnissvæði í Aegibong Peace Ecopark, innan við tveimur kílómetrum frá Norður-Kóreu hinum megin við Han-fljótið. Frá því að kaffihúsið tók til starfa hefur það laðað að sér tugþúsundir gesta bæði íbúa Suður-Kóreu og erlenda ferðamenn.

Ferðalagið hluti af upplifuninni

Gestir þurfa að bóka aðgang fyrirfram að svæðinu þar sem kaffihúsið stendur. Þaðan eru þeir fluttir með sérstökum skutlbílum og fara í gegnum hernaðareftirlitsstöð sem er vöktuð af vopnuðum landgönguliðum suðurkóreska hersins.

Síðasta spölinn ganga þeir að kaffihúsinu með útsýni yfir akra, fjöll og þorp í Norður-Kóreu, landi sem stjórnvöld undir stjórn Kim Jong Un hafa um árabil haldið lokuðu gagnvart …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
3
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár