Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum

Fjár­fest­ing­ar­á­ætlun bresku rík­is­stjórn­ar­innar í varn­ar­málum felur meðal ann­ars í sér meira en 5 millj­arða punda fjár­fest­ingu í drónum og sjálf­stýrðum kerfa á næstu fjórum árum. Þjóðar­ör­yggi er efna­hags­legt öryggi,“ segir Keir Starmer, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands.

Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum
Á förum Fjár­fest­inga­á­ætl­unin er eitt af síð­ustu verkum Keir Starmer í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Hann til­kynnti afsögn sína í síð­ustu viku. Verka­manna­flokk­ur­inn heldur þó völdum og verður nýr for­sæt­is­ráð­herra val­inn af þing­mönnum flokks­ins á næst­unni. Mynd: Carl Court / POOL / AFP

Keir Starmer, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, til­kynnti í dag að Bretland myndi verja tæp­lega 300 millj­örðum punda, jafn­virði 51 þús­und millj­arða króna, á næstu fjórum árum til að nútíma­væða her­afla sinn í ljósi vax­andi ógna.

Starmer, sem búist er við að láti af emb­ætti í næsta mán­uði eftir að hafa misst stuðn­ing þing­manna Verka­manna­flokks­ins, til­kynnti að heild­ar­fjár­veit­ingar til varn­ar­mála myndu aukast um 15 millj­arða punda á næstu fjórum árum. Hækkunin nemur jafn­virði 2.574 millj­arða íslenskra króna.

Þetta kom fram þegar hann kynnti lang­þráða 10 ára fjár­fest­ing­ar­á­ætlun sína í varn­ar­málum.

Sótt annars staðar í kerfið

„Á síð­asta ári tók ég þá ákvörðun í þágu þjóð­ar­hags­muna að end­ur­for­gangs­raða útgjöldum til þró­un­ar­að­stoðar í þágu varn­ar­mála og náði fram mestu aukn­ingu í útgjöldum til varn­ar­mála frá lokum kalda stríðs­ins,“ sagði Starmer í ræðu.

„Það var rétt ákvörðun því heim­ur­inn hefur breyst. Þjóðar­ör­yggi er efna­hags­legt öryggi.“

„Í dag …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár