Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum

Fjár­fest­ingaráætl­un bresku rík­is­stjórn­ar­inn­ar í varn­ar­mál­um fel­ur með­al ann­ars í sér meira en 5 millj­arða punda fjár­fest­ingu í drón­um og sjálf­stýrð­um kerfa á næstu fjór­um ár­um. Þjóðarör­yggi er efna­hags­legt ör­yggi,“ seg­ir Keir Star­mer, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands.

Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum
Á förum Fjárfestingaáætlunin er eitt af síðustu verkum Keir Starmer í embætti forsætisráðherra. Hann tilkynnti afsögn sína í síðustu viku. Verkamannaflokkurinn heldur þó völdum og verður nýr forsætisráðherra valinn af þingmönnum flokksins á næstunni. Mynd: Carl Court / POOL / AFP

Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag að Bretland myndi verja tæplega 300 milljörðum punda, jafnvirði 51 þúsund milljarða króna, á næstu fjórum árum til að nútímavæða herafla sinn í ljósi vaxandi ógna.

Starmer, sem búist er við að láti af embætti í næsta mánuði eftir að hafa misst stuðning þingmanna Verkamannaflokksins, tilkynnti að heildarfjárveitingar til varnarmála myndu aukast um 15 milljarða punda á næstu fjórum árum. Hækkunin nemur jafnvirði 2.574 milljarða íslenskra króna.

Þetta kom fram þegar hann kynnti langþráða 10 ára fjárfestingaráætlun sína í varnarmálum.

Sótt annars staðar í kerfið

„Á síðasta ári tók ég þá ákvörðun í þágu þjóðarhagsmuna að endurforgangsraða útgjöldum til þróunaraðstoðar í þágu varnarmála og náði fram mestu aukningu í útgjöldum til varnarmála frá lokum kalda stríðsins,“ sagði Starmer í ræðu.

„Það var rétt ákvörðun því heimurinn hefur breyst. Þjóðaröryggi er efnahagslegt öryggi.“

„Í dag aukum við enn frekar útgjöld til varnarmála. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Getur Ísland staðið við alþjóðlegar skuldbindingar um náttúruvernd utan Evrópusambandsins?
6
Skýring

Get­ur Ís­land stað­ið við al­þjóð­leg­ar skuld­bind­ing­ar um nátt­úru­vernd ut­an Evr­ópu­sam­bands­ins?

Svo virð­ist sem Ís­land sæk­ist eft­ir því að ger­ast að­ili að al­þjóð­leg­um samn­ing­um en leiti síð­ur eft­ir því að inn­leiða regl­urn­ar eða upp­fylla skuld­bind­ing­ar sín­ar. Rætt við líf­fræð­ing­inn Trausta Bald­urs­son og Að­al­heiði Jó­hanns­dótt­ur, pró­fess­or í um­hverf­is­rétti.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Lífið á Spáni fyrir og eftir Evrópusambandið
2
ViðtalHorft til Evrópu

Líf­ið á Spáni fyr­ir og eft­ir Evr­ópu­sam­band­ið

Fjór­um ár­um áð­ur en Spánn gekk í Evr­ópu­sam­band­ið flutti Hólm­fríð­ur Matth­ías­dótt­ir, út­gáfu­stjóri For­lags­ins, til Barcelona. Hún hef­ur upp­lif­að mikl­ar breyt­ing­ar þar og seg­ir Evr­ópu­sam­band­ið hafa dælt styrkj­um til Spán­ar og það til ým­issa mála, eins og til end­ur­bóta á sam­göng­um og land­bún­aði jafnt sem styrkj­um til menn­ing­ar­mála. Þá hafi katalónsk­an hlot­ið með­byr.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár