Stærsta arðgreiðslan fyrir Skólamat fram til þessa

Félagið Skóla­matur sem selur skóla­mötu­neytum mat hagn­að­ist um 274 millj­ónir króna fyrir skatt í fyrra og greiðir nú meira í arð.

Stærsta arðgreiðslan fyrir Skólamat fram til þessa
Eigendur Skólamatar Fanný Axels­dóttir, fram­kvæmda­stjóri mannauðs- og mark­aðs­sviðs, og Jón Axelsson for­stjóri, hafa tekið við rekstri Skólamatar ehf. af föður sínum, Axel Jónssyni, hér í miðið. Mynd: Víkurfréttir

Fjöl­skyldu­fé­lagið Skóla­matur ehf. sem sér um mat­inn í leik- og grunn­skólum víð­ast hvar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu greiddi eig­endum sínum 90 millj­ónir króna í arð í fyrra og stefnir á að greiða 100 millj­ónir í arð á þessu ári.

Það þýðir að eig­end­urnir, Axel Jónsson og börn hans, Fanný Sigríður Axels­dóttir og Jón Axelsson, sem eiga 30% hlut hvert, fá 30 millj­ónir króna hvert í greiðslur eða 23,4 millj­ónir króna eftir fjár­magnstekju­skatt, á þessu ári.

Í fyrra, þegar 90 millj­ónir króna voru greiddar í arð, átti Axel 67% í félag­inu, en hann hefur nú fram­selt 37% hlutar í félag­inu til barna sinna og félags­ins sjálfs.

Máltíðir í grunn­skólum voru gerðar gjald­frjálsar á þar­síð­asta skóla­ári með nið­ur­greiðslum frá rík­inu. Kostn­aður vegna þess var áætl­aður 3,7 millj­arðar króna, en í Reykja­vík­ur­borg einni og sér reynd­ist hann 1,7 millj­arðar króna í fyrra. Þar af greiddi ríkið tæp­lega 1,3 millj­arða króna fyrir gjald­frjálsar …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Ávöxtun fjármagns yfir 10% á ári er ósangjörn samkvæmt öllum helstu hagfræðingum heimsins. Þessar 100 miljónir í arð eru því einungis sanngjarnar ef eigendurnir hafa lagt 1000 miljónir inn í fyrirtækið.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Kapítalisminn kann sér engin takmörk, það sem verra er, er að við leyfum honum það.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu