Keir Starmer segir af sér: Stirður stjórnmálamaður sem skorti sýn

Keir Star­mer hef­ur til­kynnt af­sögn sína sem for­sæt­is­ráð­herra og formað­ur Verka­manna­flokks­ins. Gagn­rýn­end­ur segja hann hafa fros­ið á milli óend­an­legra val­mögu­leika í embætti.

Keir Starmer segir af sér: Stirður stjórnmálamaður sem skorti sýn
Keir Starmer er sagður viðunnanlegur maður af vinum sínum, en óþekkjanlegur fyrir framan hljóðnemann. Mynd: Carl Court / POOL / AFP

Keir Starmer hefur sagt af sér sem leiðtogi Verkamannaflokksins og þar með forsætisráðherra, aðeins tveimur árum eftir að hann leiddi stærsta sigur flokksins frá upphafi. Starmer er lýst sem tragískri fígúru í breskum fjölmiðlum, manni sem náði aldrei raunverulegum tökum á starfi forsætisráðherrans og skorti pólitíska sýn og sannfæringu.

Leiðtogakrísa Breta heldur áfram en Starmer er sjötti forsætisráðherrann sem segir af sér á tíu árum.

Leiddi stórsigur

Það tók Starmer ellefu ár að komast inn á breska þingið, þar sem hann leiddi Verkamannaflokkinn til stórsigurs í þingkosningum 2024 þar sem flokkurinn hlaut rúmlega 400 sæti af 600. Síðan þá hafa vinsældir flokksins dvínað hratt og er svo komið að ef kosið yrði nú, myndi flokkurinn líklega gjalda afhroð sé tekið mið af skoðanakönnunum. Atburðarrásin á bak við afsögn Stamers var óvæntur sigur manns sem hefur verið uppnefndur „konungur norðursins“ eftir frægri persónu úr skáldsagnabálkinum Krúnuleikunum.

Andy Burnham er borgarstjóri Manchester …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓHS
    Ólafur Haukur Símonarson skrifaði
    Sjö forsætisráðherrar slegnir af á tíu árum. Ástæðan: síaukin stéttaskiptin fjárhagsleg og menningarleg, mikil fátækt víða um landið, 300.000 manns sofa á götunni, vonleysi hjá millistétt og börnum hennar sem horfa til versnandi lífskjara (okurverðs á húsnæði og leigu), umhverfismál í rusli og vaxandi stokkur af okurríkur fólki sem ræður öllu sem það vill ráða. Kannast einhver við myndina?
    2
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    His demise was overdue! Lets hope Merz and Macron will follow, the sooner the better!
    1
  • SG
    Snorri Guðjónsson skrifaði
    Það er nú rannsóknarefni þessi pólitíska óreyða eftir Brexit
    Snýst þetta um versnandi efnahag eða popúlíska framagosa.
    Þyrfti að greina þetta ofan í kjölin með áhrifin á almennt launafólk og fyrirtæki
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Náttúrubarnið í Sænautaseli
3
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
3
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Halldór Jörgen Olesen
5
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár