Of lengi að semja og því „dauðir“

Banda­ríkja­for­seti hef­ur aft­ur árás­ir á Ír­an.

Of lengi að semja og því „dauðir“
Donald Trump Ræðir við fréttamenn á leið inn í Air Force One, þotu forsetaembættisins, á JFK-flugvelli í New York í gærkvöldi. Þar sótti hann leik í NBA-körfuboltadeildinni. Mynd: AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að Íran hefði verið of lengi að semja um lausn á deilunni í Mið-Austurlöndum og yrði nú „að borga fyrir það“.

Færsla Trumps á samfélagsmiðlum, þar sem hann fullyrti að íranski herinn hefði verið „gjörsigraður“, kom í kjölfar þess að Bandaríkin og Íran skiptust á skotum og reyndu þannig á vopnahlé sem tók gildi í apríl.

„Eineltisseggurinn í Mið-Austurlöndum er DAUÐUR!!! Þeir voru of lengi að semja um samkomulag sem hefði verið frábært fyrir þá, nú verða þeir að gjalda fyrir það!!!“ skrifaði Trump á samfélagsmiðilinn sinn, Truth Social.

Þetta stangaðist á við ummæli hans til fréttamanna í gær um að samningaviðræður um varanlega lausn til að binda enda á stríðið væru á „lokametrunum“ og gætu klárast á „tveimur eða þremur dögum“.

Seint í gærkvöldi sagðist bandaríski herinn hafa gert árásir á Íran í hefndarskyni fyrir að bandarísk þyrla var skotin niður á mánudag, en íranskir fjölmiðlar greindu frá sprengingum meðfram suðurströnd landsins.

Bandaríski herinn sagði síðar að flugherinn og sjóherinn hefðu stjórn á svæðinu.

Íranar sögðust hafa gert árásir á bandarískar herstöðvar í Jórdaníu og Barein í dag.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár