Hefja söfnun í minningu Ingu Daggar: „Get ekki lýst þeim harmi sem fyllir mig“

Vinir hjón­anna Ingu Daggar Krist­ins­dóttur og Vésteins Val­garðs­sonar hafa hafið söfnun til styrktar fjöl­skyld­unni, eftir að hún lést í kajakslysi og Skorra­dals­vatni. Fráfall hennar er högg fyrir fjöl­skyld­una en hjónin áttu saman tvo syni, fjög­urra og tveggja ára.

Hefja söfnun í minningu Ingu Daggar: „Get ekki lýst þeim harmi sem fyllir mig“

Söfnun er hafin til stuðn­ings fjöl­skyldu Ingu Daggar Krist­ins­dóttur sem lést í kajakslysi á Skorra­dals­vatni þann 29. apríl. 

Inga Dögg var 44 ára gömul þegar hún lést og lét eftir sig eig­in­mann, Véstein Val­garðs­son, og tvo syni, fjög­urra og tveggja ára. Fráfall hennar var mikið högg fyrir fjöl­skyld­una og kallar á miklar breyt­ingar á högum þeirra. 

„Nístandi sár og erfið helgi að baki,“ skrif­aði Vésteinn í maí, eftir kistu­lagn­ingu, minn­ing­ar­stund og útför Ingu Daggar. „Konunnar minnar, ást­ar­innar minnar, lífs­vöru­nautar míns og mömmu litlu glókoll­anna okkar.“

Ströndin skartaði sínu fegursta

Inga Dögg var frá Skarði á Skaga­strönd. Í færsl­unni sagði Vésteinn að Skarðs­strönd hafi skartað sínu feg­ursta þegar hún var jarð­sungin. „Sólin skein blítt þótt loftið væri kalt, him­in­inn felldi samt nokkur tár þegar þau síð­ustu höfðu signt sig yfir kist­una. Fegurð nátt­úr­unnar og rík sagan í kirkj­unni, sem Inga hafði sýnt svo mörgum, voru eins og heið­ursvörður. Ernir flugu meira að segja yfir.“

„Ég get ekki lýst þeim harmi sem fyllir mig, vegna litlu, móð­ur­lausu drengj­anna okkar“

Hann sagð­ist ekki geta lýst því hvernig honum leið að sjá konu sína borna út í kistu og ofan í gröf af elsk­andi ást­vinum sem harma frá­fall hennar. „Ég get ekki lýst þeim harmi sem fyllir mig, vegna litlu, móð­ur­lausu drengj­anna okkar.“ 

Sagði hann að fólkið þeirra gæfi þeim þrek og von. 

Fyrsta ferð sumarsins

Áður hafði Vésteinn greint frá frá­falli Ingu Daggar. Þar lýsti hann nota­legri hádeg­is­stund þeirra hjóna sem fóru út að borða, ræddu draum og plön. „Ýmsar þreng­ingar und­an­far­innar ára virt­ust vera að leys­ast, það virt­ist vera að rofa til og það var góður hugur í okkur. Til­hlökkun, von og bjart­sýni.“

Inga Dögg hafi verið í góðu skapi þegar hún renndi á kajak út á Skorra­dals­vatn. Hún vissi ekk­ert skemmti­legra en að veiða fisk á kajak. „Þetta var fyrsta ferð sum­ars­ins. Þetta var líka sú síð­asta.“

Hún skil­aði sér ekki þangað þar sem þau ætl­uðu að hitt­ast. „Konan mín, ástín mín, var örend í vatn­inu.“

Ætluðu að hefja búskap

Í yfir­lýs­ingum frá vinum fjöl­skyld­unnar, sem standa að söfn­un­inni, segir að Inga Dögg hafi verið nátt­úru­unn­andi, bæði á sjó og landi. Eyjar Breiða­fjarðar voru hennar para­dís.

Hún var tann­smiður að mennt en vann lengst af við umönnun fatl­aðra.

Síðustu árin bjó hún á Hvann­eyri í Borg­ar­firði þar sem Vésteinn eig­in­maður hennar nam búfræði, en framundan hjá þeim hjónum var að hefja búskap. 

Nánari upp­lýs­ingar um söfn­un­ina má finna hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár