Myndbandsupptaka úr búkmyndavél lögreglu af deyjandi námsmanni, sem var handjárnaður af bresku lögreglunni eftir að hafa verið stunginn af manni af suður-asískum uppruna og ranglega sakaður um kynþáttaníð í garð hans, vakti reiði í dag. Reiðir mótmælendur köstuðu hlutum í lögregluna í borginni Southampton þar sem glæpurinn átti sér stað.
Hinn átján ára gamli Henry Nowak heyrðist ítrekað segja við lögregluna „ég get ekki andað“ á upptöku úr búkmyndavél lögreglunnar þegar hann lá helsærður í desember eftir kvöldstund með liðsfélögum sínum í fótbolta.
Hægriöfgamenn nýta sér málið
Þekktir hægriöfgamenn hafa gripið málið á lofti og öfgamaðurinn Tommy Robinson talaði á fjöldafundi í Southampton í dag. Hann hélt því fram að lögreglan liti á hvíta Breta sem „annars flokks borgara“.
Mótmælendur gengu síðan fylktu liði um miðborgina í átt að vettvangi glæpsins og réðust á lögregluna, sem lokaði veginum, með grjóti, flöskum og ruslatunnum.
Dómari dæmdi í gær morðingjann, hinn 23 ára gamla Vickrum Digwa, í að minnsta kosti 21 árs fangelsi fyrir að stinga Nowak til bana með 21 sentímetra löngum hníf.
Þegar lögreglan kom á vettvang laug Digwa að lögreglumönnunum og sagði þeim að Nowak hefði beitt hann kynþáttaníði og að hann væri sjálfur fórnarlambið.
Myndbandsupptakan, sem var spiluð við réttarhöldin yfir Digwa, sýnir lögregluna taka ásökun árásarmannsins trúanlega og í stað þess að hjálpa Nowak handjárnaði hún hann í fyrstu þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hans um að hann hefði verið stunginn og næði ekki andanum.
Einn lögreglumaður heyrist spyrja Nowak: „Varstu stunginn, hvar?“ áður en hann bætir við: „Ég held ekki, vinur.“
Skömmu síðar hneig námsmaðurinn niður og missti meðvitund.
Eftir að Digwa var dæmdur í Southampton Crown Court lýsti faðir Nowaks, Mark, meðferð lögreglunnar á syni sínum sem „átakanlegri“.
Hann kallaði meðferðina á Nowak „ómannúðlega og niðurlægjandi ... morðingi hans naut hins vegar sómasamlegrar meðferðar. Honum var trúað.“



Upptakan birt
Fjölskyldan gaf lögreglunni leyfi til að birta upptökuna úr búkmyndavélinni. Lögreglan hefur vísað málinu til óháðu lögreglueftirlitsnefndarinnar (IOPC).
Keir Starmer forsætisráðherra sagði á þriðjudag að upptakan úr búkmyndavélinni væri „hryllileg“ og kallaði rannsókn IOPC „algjörlega réttmæta“ og viðurkenndi að lögreglan þyrfti að svara „alvarlegum spurningum“.
Shabana Mahmood innanríkisráðherra hvatti fólk í dag til að leyfa morðinu ekki að „æsa samfélagshópa hvern gegn öðrum“.
„Við verðum að fordæma þá sem reyna að hagnast pólitískt á harmleik,“ sagði hún á þingi.
Kemi Badenoch, leiðtogi Íhaldsflokksins, helsta stjórnarandstöðuflokksins, og Nigel Farage, leiðtogi þjóðernisflokksins Reform UK, kölluðu eftir breytingum á fjölmenningarstefnu lögreglunnar.
Farage sagði: „Við búum í tvískiptri menningu ... þar sem réttindi og forréttindi hvítra skipta minna máli en réttindi og forréttindi þjóðernisminnihlutahópa.“
Badenoch sakaði Farage um að „dýpka gjána“ en gagnrýndi einnig svokallaða „tvískipta löggæslu“ þar sem lögreglumenn eru sagðir sýna þjóðernisminnihlutahópum meiri linkind.
Segir hvíta vera annars flokks
Í kvöld söfnuðust meira en þúsund mótmælendur saman fyrir utan aðallögreglustöðina í Southampton, kölluðu „tvískipt óþvætti“ og „skammist ykkar!“ og veifuðu breska fánanum og enska fánanum, að sögn fréttamanna AFP.
Hægriöfgaleiðtoginn Robinson sagði við mannfjöldann að „ef Henry (Nowak) hefði ekki verið hvítur hefði hann ekki verið handjárnaður“ og að „sem hvítt fólk erum við annars flokks borgarar í augum okkar eigin lögreglu“.
Mótmælendur, sumir með grímur, gengu síðan að íbúðahverfinu þar sem glæpurinn átti sér stað og réðust á röð lögreglumanna með hjálma og óeirðaskildi og kölluðu „óþvætti“.
Bandaríski tæknijöfurinn Elon Musk hefur birt færslu á X þar sem hann býðst til að fjármagna einkamál gegn lögreglunni vegna meðferðar hennar á morðmálinu.
Fjölskyldan samsek
Digwa kom aftur fyrir dóm í dag ásamt bróður sínum, Gurpreet Digwa, 27 ára, og föður sínum, Moga Singh, 52 ára, vegna vopnalagabrota.
Allir þrír eru ákærðir fyrir vörslu hættulegra vopna, þar á meðal fjaðurhnífs, útdraganlegrar kylfu, hnúajárna, sveðju og sverða. Bróðir og faðir Digwa voru látnir lausir gegn tryggingu þar til næsta yfirheyrsla fer fram í júlí.
Fjölskylda Digwa bað fjölskyldu Nowak afsökunar á morðinu og á því að hafa kastað rýrð á samfélag síka.
Móðir hins dæmda morðingja, Kiran Kaur, 53 ára, fær dóm 17. júlí fyrir aðstoð við afbrotamann með því að fara með hnífinn aftur heim til fjölskyldunnar.
















































Athugasemdir