„Við trúum á frjálst Grænland“

„Við Græn­lend­ingar búum okkur venju­lega undir það versta en vonum það besta,“ segir Aqqalukkuluk Fontain. Yfir fimm hund­ruð Græn­lend­ingar mót­mæltu í dag fyrir utan nýja ræð­is­skrif­stofu í Nuuk. Skila­boðin voru ein­föld: „Farið heim, Banda­ríkin!“

„Við trúum á frjálst Grænland“
Banda­ríkin burt Fjölmenn mót­mæli voru í Nuuk í dag. Mynd: Esther

„Við munum ákveða fram­tíð okkar sjálf,“ segir Aqqalukkuluk Fontain en hann efndi til mót­mæla í dag fyrir framan nýja stað­setn­ingu banda­rísku ræð­is­skrif­stof­unnar á Græn­landi sem var opnuð í Nuuk í dag. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar fylgd­ist með mót­mæl­unum sem fóru fram á einum sól­rík­asta degi árs­ins en yfir fimm hund­ruð komu saman. Sam­staðan var mikil og skila­boðin skýr: „Farið heim, Banda­ríkin!“

Fontain segir stöð­una á Græn­landi und­an­farið hafa róast aðeins miðað við í upp­hafi árs þegar Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagð­ist vilja taka landið yfir. Síð­ast­liðin vika hefur þó kveikt undir ákveðnum neista að nýju en Jeff Landry, rík­is­stjóri Louisiana og sér­stakur erind­reki Trumps á Græn­landi, heim­sótti Nuuk fyrr í vik­unni við dræmar und­ir­tektir heima­manna.

„Ég er hér til að segja nei við stórri banda­rískri ræð­is­skrif­stofu,“ sagði Malik Dollerup Scheibel, mót­mæl­andi sem blaða­maður tók tali. „Bara þótt það geti verið hér, þýðir það ekki að það eigi að vera hér.“ Scheibel …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár