Oddviti Vinstrisins veit ekki enn hvort hann sé skráður í Sósíalista

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, odd­viti Vinstr­is­ins, hefur ekki fengið svör um skrán­ingu sína í Sós­í­alista­flokk­inn. Uppgjör átti sér stað í odd­vita­spjalli Pressunnar.

Silja og Sanna Leiðtogar á vinstri vængnum tókust á.

„Ég hef ekki sagt mig úr Sós­í­alistum en ég hef ekki heldur fengið svar hvort ég sé skráð í flokk­inn,“ sagði Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir í Odd­vita­spjalli Pressunnar á vegum Heim­ild­ar­innar sem var haldið í Tjarn­ar­bíói í gær­kvöldi. Þetta var fyrsta kvöldið af þremur í umræð­u­röð Heim­ild­ar­innar.

Odd­vit­arnir á vinstri vængnum úti­lok­uðu ekki sam­starf þrátt fyrir haðr­vítug átök í kringum Sönnu sem yfir­gaf Sós­í­alista á síð­asta ári.

Spurð hvort Sanna vissi ekki hvort hún væri í Sós­í­alistum svar­aði Sanna því til að hún hefði sent fyr­ir­spurn á flokk­inn. „Ég hef ekki fengið svar. Þetta er orðið mjög per­sónu­legt. En ég auð­vitað ein­blíni á fram­tíð­ina, hvernig við vinnum sem best fyrir borg­ar­búa. Við erum núna tvær hreyf­ingar sem eru að vinna saman í vinstr­inu og manni sýn­ist íbúar vera að taka jákvætt í það að við séum að ein­blína á það hvað sam­einar okkur,“ sagði hún.

Vinstrið flutt inn …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LDA
    Lilja Dögg Arnþórsdóttir skrifaði
    Og hvað með það? Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar er skráð í marga flokka.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár