Veðurfræðingur á sumardaginn fyrsta: „Vorið er komið“

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur fagnar sum­ar­deg­inum fyrsta með því að lýsa vorið komið. Sumarið kemur hins vegar í skrefum. Engin leið er að spá fyrir um hvernig veðrið verður í sumar, en síð­asta sumar var óvenju hlýtt og þar áður var óvenju kalt. Hlýnun sjávar hefur áhrif á veð­ur­far, svo fylgj­ast þarf með breyt­ingum á AMOC-haf­straumnum og tala máli Íslend­inga á alþjóða­vett­vangi.

Veðurfræðingur á sumardaginn fyrsta: „Vorið er komið“

Sumarið 2025 var eitt það hlýjasta í sögu mæl­inga á Íslandi, en sum­arið 2024 var talið eitt það kaldasta á þess­ari öld. Engin leið er að spá fyrir um hvernig sum­arið verður í ár, segir Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur.

Í spá­kortum birt­ast engar breiðar línur sem hægt er að styðj­ast við, ekki enn að minnsta kosti. Hann tekur stöð­una aftur þann 10. maí í von um að geta séð aðeins inn í fram­tíð­ina, eitt­hvað lengra en næstu daga: „Næstu daga verða hlý­indi. Kalt loft lúrir fyrir norðan landið og vestan og um tíma var útlit fyrir að það myndi ná til lands fyrir helgi en nýjar spár gera ráð fyrir því að svo verði ekki. Þetta er tími vor­hreta. Jafnvel þótt það verði minni­háttar hret um helg­ina hlýnar strax aftur.“

Vorið er komið

Á sum­ar­dag­inn fyrsta er óhætt að halda því fram að vorið sé komið. „Vorið er …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár