Rússar og Norður-Kóreumenn fagna nýrri brú

Samband ríkj­anna styrk­ist enn frekar við opnun nýrrar brúar á milli land­anna.

Rússar og Norður-Kóreumenn fagna nýrri brú

Rússland og Norður-Kórea halda í dag athöfn til að fagna fyrsta áfanga vega­brúar á milli land­anna, en til stendur að opna fyrir umferð yfir brúnna í sumar.

Brúin liggur yfir Tumen-fljótið sem markar landa­mæri ríkj­anna og getur borið allt að 300 öku­tæki og 2.850 manns á dag, sam­kvæmt sam­göngu­ráðu­neyti Rúss­lands.

Ríkin sæta bæði þungum alþjóð­legum refsi­að­gerðum, en tengsl þeirra hafa styrkst veru­lega vegna stríðs Rúss­lands í Úkraínu. Á sviði efna­hags­mála, stjórn­mála, menn­ingar og her­mála hefur sam­starf Moskvu og Pyongyang auk­ist.

Blása lífi í hagkerfið

Í síð­ustu viku var­aði Suður-Kórea við því að stuðn­ingur frá Kína og Rúss­landi hjálpi til við að blása lífi í norð­ur­kóreska hag­kerfið, sem hefur átt erfitt upp­dráttar um ára­bil vegna víð­tækra refsi­að­gerða, nær algerrar alþjóð­legrar ein­angr­unar og mik­illar fjár­fest­ingar í hern­aði.

Norður-Kórea birtir ekki opin­ber gögn um stærð hag­kerfis síns.

Að mati yfir­valda í Seoul nam verg lands­fram­leiðsla Norður-Kóreu um 30 millj­örðum banda­ríkja­dala árið 2024, sem er aðeins brot af hag­kerfi Suður-Kóreu, einu þró­að­asta hag­kerfi heims.

Norður-Kórea hefur lengi glímt við skort. Hung­ursneyð um miðjan tíunda ára­tug­inn varð hund­ruðum þús­unda að bana og skýrslur benda til þess að Covid-19 heims­far­ald­ur­inn hafi einnig ýtt mörgum út í mikla hung­ursneyð.

Tímamót í samskiptum ríkjanna

Rússland og Norður-Kórea und­ir­rit­uðu varn­ar­samn­ing árið 2024 sem kveður á um hern­að­ar­stuðn­ing ef annað hvort landið verður fyrir árás. Sama ár sendi Norður-Kórea þús­undir her­manna til Rúss­lands til að styðja stríðið í Úkraínu. Þeir voru sendir til vest­ur­hluta Kursk-hér­aðs­ins til að hjálpa við að verj­ast margra mán­aða gagn­sókn úkra­ínskra her­sveita.

Nýlega hafa nokkrir hátt­settir rúss­neskir emb­ætt­is­menn heim­sótt Norður-Kóreu, þar á meðal inn­an­rík­is­ráð­herr­ann, sem er nú staddur þar í landi.

Utan­rík­is­ráðu­neyti Rúss­lands sagði að opnun brú­ar­innar „verði sann­ar­lega tíma­mót í sam­skiptum Rúss­lands og Kóreu. Þýðing hennar nær langt út fyrir það að vera verk­fræði­legt afrek.“ Hún myndi stuðla að „þróun við­skipta, efna­hags­legra tengsla og mann­úð­ar­sam­skipta“ milli Rúss­lands og Norður-Kóreu.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár