Börn undir í átökum við tæknirisa

Evr­ópsk stjórn­völd standa í bar­átt­u við stærstu tækni­fyr­ir­tæki heims. Á síð­ustu vik­um hafa ver­ið grip­ið til að­gerða, rann­sókna og nýrra laga­lega við­miða sem ætl­að er að vernda börn á net­inu. Nú var ver­ið að kynna ald­urs­stað­fest­ing­arapp sem á að koma í veg fyr­ir að börn kom­ist í efni sem er ætl­að full­orðn­um.

Evrópsk stjórn­völd standa á tíma­mótum í bar­átt­unni við stærstu tækni­fyr­ir­tæki heims. Á síð­ustu vikum hafa verið kynntar nýjar aðgerðir, hafnar rann­sóknir og sett fram laga­leg við­mið sem öll miða að einu: að vernda börn á net­inu.

Í brennid­epli eru bæði sam­fé­lags­miðlar, klám­vefir og ný tækni á borð við gervi­greind — og nú fyrst virð­ist stefna Evr­ópu­sam­bands­ins vera að mót­ast sem heild­stæð atlaga að staf­rænu vist­kerfi sem hingað til hefur að miklu leyti stýrt sér sjálft.

Nýtt aldursstaðfestingarapp

Kjarni nýrrar stefnu ESB er ald­urs­stað­fest­ing­arapp sem kynnt var af for­seta fram­kvæmda­stjórn­ar­innar, Ursula von der Leyen. Appið á að verða lyk­il­tæki í því að koma í veg fyrir að börn kom­ist í efni sem er ætlað full­orðnum.

Hug­myndin er ein­föld í grunn­inn en flókin í fram­kvæmd: not­endur sanna aldur sinn einu sinni, með því að tengja appið við vega­bréf eða önnur skil­ríki, og geta síðan notað staf­rænt vott­orð til …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár