„Þetta var það svívirðilegt að það er varla annað hægt,“ segir Ólafur Kristinsson, lögmaður sem hefur í félagi við Vilhjálm Bjarnason, fyrrverandi þingmann, stefnt Björgólfi Thor Björgólfssyni og Birgi Má Ragnarssyni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur fyrir njósnir, brot á rétti einkalífsins, umsáturseinelti og brot á persónuvernd. Málsóknin tengist umfjöllun Kveiks um PPP málið svokallaða. RÚV greindi fyrst frá málsókninni.
Forsaga málsins er sú að félagið PPP, sem var í eigu Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi lögreglumanns, og Guðmundar Hauks Gunnarssonar, var notað til þess að njósna um Vilhjálm og Ólaf árið 2012. Ástæðan var sú að Ólafur og Vilhjálmur voru í forsvari fyrir hóp sem stóð á bak við hópmálsókn gegn Björgólfi Thor í tengslum við fall Landsbankans í hruninu.
Í Kveiksþættinum kom fram að Björgólfur hefði talið þá vera handbendi Róberts Wessman, auðmennirnir tveir höfðu eldað grátt silfur og …



















































Athugasemdir (1)