„Heil siðmenning mun deyja í kvöld og verður aldrei endurvakin,“ sagði Donald Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum og ítrekaði kröfur sínar til íranskra stjórnvalda um að semja um endalok stríðsins sem hann hóf gagnvart landinu.
Forsetinn bandaríski hefur gefið Írönum til miðnættis í kvöld til að verða við kröfum sínum, sem felast meðal annars í því að Íranir leyfi á ný frjálsa för skipa um Hormússund. Um sundið fer stór hluti olíu heimsins og hefur lokunin þegar haft víðtæk efnahagsleg áhrif.
Trump skrifaði í færslunni að hann vonaðist til að kannski geti „eitthvað byltingarkennt og dásamlegt gerst“ til að koma í veg fyrir átök. Þá kallaði hann stöðuna eitt mikilvægasta augnablik í „langri og flókinni sögu heimsins“.
„47 ára kúgun, spillingu og dauða mun loksins ljúka. Guð blessi hina stórkostlegu írönsku þjóð!“




















































Athugasemdir (2)