Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi í dag að blaðamaður sem fjallaði um að bandarískur flugmaður væri týndur í Íran, yrði fangelsaður ef hann gefur ekki upp heimildarmann sinn. Þá sagðist hann geta „tekið út allt Íran“.
Trump sagði að stjórn hans myndi nálgast fjölmiðlafyrirtækið og blaðamann sem fjallaði um að bandaríski flugmaðurinn væri týndur og hóta þeim fangelsun.
„Við munum fara til fjölmiðlafyrirtækisins sem gaf þetta út og við munum segja: Þjóðaröryggi, gefðu það upp eða farðu í fangelsi.“
Þannig verði heimildarmannsins leitað. „Við þurfum að finna þennan lekamann, það er sjúk manneskja.“
Þá ítrekaði hann að blaðamaðurinn ætti að gefa upp heimildir sínar eða vera handtekinn.
„Manneskjan sem gerði fréttina fer í fangelsi ef hún segir ekki frá.“
Flugmaðurinn var annar tveggja sem var í flugvél sem var skotin niður í aðgerðinni sem Trumpstjórnin kallar Epíska bræði. Flugmaðurinn faldi sig í helli. Bandaríski flugherinn í samstarfi við CIA notaði 170 loftför til þess að finna flugmanninn.
Bæði stríðsmálaráðherrann og forstjóri CIA hrósaði leiðtogahæfni Trumps í hvívetna og þakkaði Guði.
„Flugmaðurinn endurfæddur, þjóð sem fagnar. Guð er góður,“ sagði Pete Hegseth stríðsmálaráðherra. „Þeir voru banvænir,“ sagði Hegseth um bandarísku hermenninna og sagði að Íranir sem reyndu að nálgast flugmanninn hefðu mætt „dauða að ofan“.
„Við erum fullir lotningar,“ sagði Pete Hegseth um Trump forseta.
Trump sagði einnig á fundinum að hægt væri að „taka út“ allt Íran á morgun þegar frestur sem hann gaf íslamska lýðveldinu til að opna aftur hið mikilvæga Hormússund rynni út.
„Það væri hægt að taka út allt landið á einni nóttu og sú nótt gæti verið á morgun,“ sagði Trump á blaðamannafundi í dag.




















































Athugasemdir (1)