Hótar að fangelsa blaðamann og „taka út“ allt Íran

Banda­ríkja­for­seti leit­ar að leka­manni sem hafi lát­ið vita að flug­mað­ur týnd­ist í Ír­an.

Hótar að fangelsa blaðamann og „taka út“ allt Íran
Trump og Hegseth Bandaríkjaforseti og stríðsmálaráðherra lýsa björgunaraðgerð í Íran rétt í þessu. Mynd: AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi í dag að blaðamaður sem fjallaði um að bandarískur flugmaður væri týndur í Íran, yrði fangelsaður ef hann gefur ekki upp heimildarmann sinn. Þá sagðist hann geta „tekið út allt Íran.

Trump sagði að stjórn hans myndi nálgast fjölmiðlafyrirtækið og blaðamann sem fjallaði um að bandaríski flugmaðurinn væri týndur og hóta þeim fangelsun.

„Við munum fara til fjölmiðlafyrirtækisins sem gaf þetta út og við munum segja: Þjóðaröryggi, gefðu það upp eða farðu í fangelsi.“

Þannig verði heimildarmannsins leitað. „Við þurfum að finna þennan lekamann, það er sjúk manneskja.“

Þá ítrekaði hann að blaðamaðurinn ætti að gefa upp heimildir sínar eða vera handtekinn.

„Manneskjan sem gerði fréttina fer í fangelsi ef hún segir ekki frá.“

Flugmaðurinn var annar tveggja sem var í flugvél sem var skotin niður í aðgerðinni sem Trumpstjórnin kallar Epíska bræði. Flugmaðurinn faldi sig í helli. Bandaríski flugherinn í samstarfi við CIA notaði 170 loftför til þess að finna flugmanninn.

Bæði stríðsmálaráðherrann og forstjóri CIA hrósaði leiðtogahæfni Trumps í hvívetna og þakkaði Guði. 

„Flugmaðurinn endurfæddur, þjóð sem fagnar. Guð er góður,“ sagði Pete Hegseth stríðsmálaráðherra. „Þeir voru banvænir,“ sagði Hegseth um bandarísku hermenninna og sagði að Íranir sem reyndu að nálgast flugmanninn hefðu mætt „dauða að ofan“.

„Við erum fullir lotningar,“ sagði Pete Hegseth um Trump forseta.

Trump sagði einnig á fundinum að hægt væri að „taka út“ allt Íran á morgun þegar frestur sem hann gaf íslamska lýðveldinu til að opna aftur hið mikilvæga Hormússund rynni út.

„Það væri hægt að taka út allt landið á einni nóttu og sú nótt gæti verið á morgun,“ sagði Trump á blaðamannafundi í dag.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Páll Guðfinur Gústafsson skrifaði
    Hótar að fangelsa blaðamenn fyrir að segja frá… og talar svo um að „taka út heilt land“ á morgun.

    Þetta er orðið ansi einfalt.
    ef þér líkar ekki fréttirnar – þá hótarðu fjölmiðlum, og ef þér líkar ekki ríki – þá hótarðu að eyða því.

    Algjör „leiðtogahæfni,
    allt leyst með hótunum og HÁSTÖFUM á Truth Social.
    5
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Halda Kanarnir að þeir geti komið klerkastjórninni í Íran frá meðan þeir ráða ekki einu sinni við sína eigin. Það er illa komið fyrir þjóð þegar örlög hennar velta orðið á geðþótta og skapsmunum æðsta "klerksins" og hvernig honum gekk á salerninu þann daginn.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
GreiningBandaríki Trumps

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.
Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
ErlentBandaríki Trumps

Kalla eft­ir al­þjóð­leg­um að­gerð­um gegn „öfga­fullu vinstri fólki“

Ut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna seg­ir „hryðju­verka­fólk“ und­ir yf­ir­skini „jafn­rétt­is, rétt­læt­is og frels­is“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, seg­ir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll af­mynd­uð á ein­hvern hátt í út­liti, klæða­burði og hátta­lagi,“ seg­ir hann.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
2
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
4
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár