Ferðakostnaður Reykjavíkurborgar kostaði útsvarsgreiðendur um 65 milljónir króna á síðasta ári, eða árið 2025, þar af voru 45 milljónir tæpar vegna ferðalaga erlendis. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar er atkvæðamest þegar kemur að ferðalögum Reykjavíkurborgar. Gjaldfærður kostnaður árið 2025 vegna ferða kjörinna fulltrúa var um fjórar milljónir króna og skrifstofa Reykjavíkurborgar er með næsthæsta kostnaðinn þegar kemur að ferðalögum innan borgarinnar.
Alls voru 296 ferðaheimildir samþykktar hjá Reykjavíkurborg árið 2025 samkvæmt svörum borgarinnar við fyrirspurn Heimildarinnar. Einnig var spurt um ferðakostnað eftir sviðum. Í svörunum kemur fram að skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar fékk 139 ferðaheimildir samþykktar hjá Reykjavíkurborg, þar af 27 vegna ferða innanlands. Kostnaður vegna ferðalaganna var um 22 milljónir króna en sviðið er umfangsmikið. Það nær yfir skóla- og frístundaþjónustu í leikskólum, grunnskólum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum, skólahljómsveitum og fleiri stofnunum í Reykjavík.
Skrifstofan næstdýrust
Þegar litið er til skrifstofu miðlægrar stjórnsýslu má sjá að þar er ferðakostnaður næsthæstur. Starfsfólk skrifstofunnar …





















































Athugasemdir