Verðbólga mælist 5,4% í mars – eldsneyti og matvara hækka mest

Verð­bólga hækk­ar fjórða mán­uð­inn í röð og hef­ur ekki mælst hærri síð­an í sept­em­ber 2024.

Verðbólga mælist 5,4% í mars – eldsneyti og matvara hækka mest

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55 prósent milli mánaða í mars og hefur því hækkað á ársgrundvelli um 5,4 prósent. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð sem verðbólgan hækkar.

Þetta kemur fram í nýjum gögnum Hagstofunnar. Þar segir einnig að í mars hafi vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,67 prósent og hefur verðbólga án húsnæðis á ársgrundvelli því verið 4,9 prósent.

Verðhækkanir í mars skýrast einkum af hækkunum á eldsneyti og matvöru.

Verð á mat og óáfengum drykkjum hækkaði um 0,7 prósent og hafði 0,11 prósent áhrif á vísitöluna. Þá hækkaði bensínverð um 5,8 prósent og díselverð um 6,9 prósent, með samtals 0,15 prósent áhrif á vísitöluna.

Ný mæling vísitölunnar, sem miðuð er við verðlag í mars, verður notuð til verðtryggingar í maí 2026.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það er nú ekki rétt hjá þér Aðalsteinn Kjartansson að verðbólgan hafi hækkað fjóra mánuði í röð. Verbólgan stóð í stað í febrúar, var þá 5,2% eins og í janúar.
    Endilega viðhafið ábyrga blaðamennsku. Ég vil helst ekki borga fyrir annað.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár