Seðlabankinn varar við áhættu á húsnæðismarkaði

Fram­boð íbúða hef­ur snar­auk­ist á síð­ustu mán­uð­um þó að vís­bend­ing­ar séu um að bygg­ing­ar­að­il­ar séu að seinka því að klára nýj­ar íbúð­ir. Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Ís­lands tel­ur að þótt van­skil séu enn lít­il auki sam­spil hárra vaxta og lengri sölu­tíma áhættu í grein­inni.

Seðlabankinn varar við áhættu á húsnæðismarkaði

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands bendir á vaxandi áhættu á húsnæðis- og byggingamarkaði. Í nýrri yfirlýsingu nefndarinnar kemur fram að húsnæðisverð sé enn hátt á flesta mælikvarða, þrátt fyrir að hafa lækkað að raunvirði. Framboð íbúða hafi aukist og sölutími lengst, sérstaklega þegar kemur að nýbyggingum.

Á sama tíma hafi skuldir byggingageirans við bankakerfið aukist á síðustu misserum. Þótt vanskil séu enn lítil segir nefndin að samspil hárra vaxta og lengri sölutíma auki áhættu í greininni. Lánveitendur þurfi því að vera vakandi fyrir þróuninni, að mati nefndarinnar.

Ný gögn frá HMS styðja við mat Fjármálastöðugleikanefndar um að aukin áhætta sé að myndast á húsnæðis- og byggingamarkaði, einkum vegna hraðrar framboðsaukningar og hægari sölu.

Átján prósenta aukning íbúða í sölu

Framboð íbúða hefur aukist verulega frá áramótum. Í byrjun janúar voru um 5.100 íbúðir til sölu á landinu en í byrjun mars voru þær orðnar rúmlega 6.000, sem jafngildir nær 18 prósenta …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GRR
    Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Væri íbúðamarkaðurinn hér sæmilega skilvirkur skyldi maður ætla að markaðsaðstæður eins og þær sem hér er lýst ættu að valda nokkuð skarpri nafnverðslækkun á íbúðahúsnæði en slíkt virðist ekki hafa gerst.
    0
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Þetta er nú meiri fréttin. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands er að senda út viðvörun um að aðgerðir nefndarinnar eru að skaða samfélagið. Ætli að nefndarmenn séu ómeðvitaðir um að þeir eru vandamálið, þeir eru með aðgerðum sínum að millifæra eignir frá þeim sem eru í fjárhagslegum vanda til þeirra sem eiga miklu meira en nóg. Þetta hefur afleiðingar. Hef heyrt að svona gjörningur / aðgerðir séu kallaður þjófnaður. Þessi della er sennilega réttlætt með einhverjum kenningum sem heldur nefndarmönnum í furðulegri spennitreyju. Það væri upplýsandi ef blaðamenn mundu telja öll þau „sérfræðingaálit“ sem birtast í fjölmiðlum í hverri viku um efnahagsvanda og svo yfirlit um fréttir um hvort einhver sé raunverulega að gera eitthvað að gagni, til að leysa úr óreiðunni. Allt eru þetta nú mannleg óreiða sem menn skapa meðvitað, oft með frekju og yfirgangi til að tryggja sérhagsmuni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár