Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) hefur vísað frá máli áströlsku konunnar Nöru Walker sem sakfelld var fyrir líkamsárás á Íslandi og sætti fangelsisvist. Kvörtun hennar hafi verið illa grunduð.
„Dómstóllinn bendir á að umsækjandi hefur ekki lagt fram sönnunargögn sem geta sýnt fram á að mismunun hafi átt sér stað,“ segir í niðurstöðu MDE. „Hvað varðar erlent ríkisfang umsækjanda eru engar vísbendingar í málsgögnum um að það hafi haft neikvæð áhrif á meðferð hvorugs málsins þar sem henni var veittur túlkur.“
Nara var sakfelld fyrir líkamsárás og stórfellt ofbeldisbrot í nánu sambandi sem átti sér stað í nóvember 2017. Hún beit tungu fransks eiginmanns síns í sundur en var einnig dæmd fyrir árás á konu sem var gestur á heimilinu. Hún sagði atvikið hafa verið sjálfsvarnarviðbragð og að eiginmaður sinn hafi beitt sig ofbeldi. Eiginmaður hennar hefur neitað því.
Báðum liðum vísað frá
Kæra hennar til MDE snéri …



















































Athugasemdir