Borga 35 milljarða í arð af bankastarfsemi

„Telst af­ar gott,“ seg­ir formað­ur banka­ráðs um gríð­ar­leg­an hagn­að af vaxtamun. Lands­bank­inn græddi 104 millj­ón­ir á hverj­um degi árs­ins.

Borga 35 milljarða í arð af bankastarfsemi
Lilja Björk Einarsdóttir Bankastjóri Landsbankans skilaði niðurstöðu í fyrra sem telst góð á mælikvaðra nágrannaríkja Íslands. Mynd: Aðsend

Aðalfundur Landsbankans sem haldinn var í nýjum höfðustöðvum bankans í dag samþykkti að greiða samtals 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa á árinu 2026. 

Hagnaðurinn í fyrra var 38 milljarðar króna, sem „telst afar gott, bæði í samanburði við innlenda banka og banka í nágrannaríkjunum,“ eins og Jón Þorvarður Sigurgeirsson, formaður bankaráðs, í skýrslu þess á fundinum.

Arðsemi eigin fjár var 11,6% og kostnaðarhlutfallið 34,3%.

Bankinn hagnaðist fyrst og fremst á vaxtamun í fyrra. Hreinar vaxtatekjur á árinu 2025 náum 62,1 milljarði króna og hreinar þjónustutekjur 12,6 milljarðar króna. Í dag tilkynnti peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands um hækkun stýrivaxta um 0,25% upp í 7,5% eftir langt lækkunarskeið.

Til að setja hagnað Landsbankans í fyrra í samhengi má benda á að hann var 104 milljónir króna á dag, 4,3 milljónir á hverja klukkustund ársins og 72 þúsund krónur á mínútu nótt sem dag.

Eigendur Landsbankans eru um það bil 800 talsins, þar af er ríkissjóður stærsti eigandinn með 98,2%

Jón Þorvarður varaði við áhrifum stríðsátaka og mikilli óvissu á fjármálamörkuðum, en benti á að íslenska fjármálakerfið stæði traustum fótum. 

„Að mínu mati markaði síðasta ár tímamót þegar lánshæfismat bankans hjá S&P var hækkað í apríl úr B-flokki í A-flokk fyrst íslenskra banka í nær 20 ár,“ sagði hann.

Þá boðaði hann að endurhvarf frá þeirri stefnu að loka útibúum banka.

„Fyrir fáum árum gekk yfir bylgja þar sem útibúum banka var lokað í stórum stíl. Landsbankinn tók seint þátt í þeirri bylgju og nú virðist svo sem hún sé víða að fjara út. Raunar hafa sumir erlendir bankar, til dæmis í Bandaríkjunum, boðað fjölgun útibúa á ný til að vera nær viðskiptavinum sínum,“ sagði Jón Þorvarður í skýrslu bankaráðs.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Þessi arðgreiðsla (ef árleg) getur einungis verið sanngjörn ef eigendurnir 800 hafi sett 349 miljarða eða meira inn í fyrirtækið. Það myndi þá jafngilda 10% ársávöxtun sem er það sem hagfræðingar telja vera hæðstu sanngjörnu ávöxtunarkröfuna.
    Það væri nú fróðlegt að vita hversu mikið eigendurnir eru búnir að setja inn í fyrirtækið. Það er að segja hversu mikið hlutafé hefur farið í bankan frá frumfjárfestunum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
3
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Náttúrubarnið í Sænautaseli
5
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.
„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
6
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár