Aðferðin sem ríkisstjórnir Bandaríkjanna, Ísraels og Rússlands nota er kennd við illsku, hatur, ofmetnað, öfund, vanmetakennd, tortímingu, þetta er aðferð óttans. Allir þessir karlar sem koma við sögu; Trump, Khamenei, Netanyahu, Putin og fylgisveinar þeirra eru á valdi óttans og stjórnast af ótta. Þeir hafa valið dauðann sem mátt sinn og megin.
Við borgarar þessa heims höfum aftur á móti valið lífið og kærleikann. Við getum ekki fylgt leiðtogum sem eru á valdi óttans og sem telja sig sjálfa vera sterka leiðtoga. Þeir hvorki virða né verja það sem okkur er kærast. Þeir hafa ekkert að gefa okkur nema grimmd og tortryggni. Allt sem þeir gera vekur og skapar haturstilfinningu. Við getum ekki treyst þeim og eigum ekki að fylgja þeim. Þeir láta fólk ganga veg óttans fyrir sig og fela sig sjálfir bak við lygi og blekkingar.
Þeir drepa ekki aðeins aðra leiðtoga ríkja sem þeir hata og skipta um ríkisstjórnir heldur drepa þeir tugi, hundruð og þúsundir barna eins og í Palestínu og núna í Íran, og ræna þúsundum frá foreldrum sínum í Úkraínu. Hugsið ykkur grimmdina! Þeir opna brunna haturs sem borgarar þeirra eigin þjóða þurfa að takast á við næstu áratugi. Þeir opna sár sem ekki verður búið um né fyrirgefið. Við fylgjum ekki slíkum leiðtogum. Við eigum ekki að hlýða þeim, rétta þeim hjálparhönd eða horfa framhjá glæpum þeirra.
Öllum er þeim sama um íranska þjóð
Eða hvernig ættu siðblindir leiðtogar að geta bjargað írönsku þjóðinni undan siðblindri klerkastjórn? Þeir hafa þegar svikið þjóðina og drepið tugi barna án þess að gangast við ábyrgðinni. Þeir segjast aðeins treysta á eigin siðgæðisvitund og hampa sjálfum sér sem sigurvegurum. Klerkunum er sama um þjóðina, svo virðist sem ríkisstjórnum Trumps og Netanyahu sé líka sama um írönsku þjóðina. Þar er harmleikurinn.
Stríðsherrar þekkjast á því að segjast vera í stríði til að koma á friði. Þeir stofna friðarráð Trumps og bjóða harðstjórum að sitja til borðs. Trump segir að ríkisstjórn sín myndi ekki koma NATÓ-þjóð til hjálpar ef ráðist yrði á hana en heimtar að NATÓ hjálpi sér í sínu eigin ólögmæta, tilgangslausa og blóðuga stríði gegn Íran. Hann blygðast sín ekki.
Veljum lífið og mótmælum af krafti
Hlutverk hvers og eins getur verið mikilvægt og við erum öll jafngild þegar allt kemur til alls, eins og dauðinn gerir ekki mannamun, fer lífið ekki í manngreinarálit. Aðgreining er af mannavöldum.
Öllum ætti að vera ljóst að nú stendur yfir tilraun til að grafa undan friðsamlegum samskiptum og alþjóðalögum. Hlutverk fjölmiðla sem sinna almannahagsmunum er að afhjúpa blekkingar og lygi. Harðstjórar vilja því grafa undan fjölmiðlum sem þjóna almenningi. Gætum að því.
Hvað gerum við nú, förum í felur eða stígum fram? Hvað ber okkur borgurunum að gera og hvað ber að forðast? Hér eru tíu ábendingar um það.
1. Ekki treysta siðblindum leiðtogum. Siðblindir leggja fyrir okkur gildrur. Okkar velferð er aldrei þeirra markmið. Þeir klæðast fötum þess úrræðagóða og sterka en eru eins og fuglinn gaukurinn sem verpir eigin eggjum í hreiður annarra, þegar ungarnir þeirra klekjast út sparka þeir öðrum eggjum og ungum úr hreiðrinu. Ég bið fuglinn afsökunar á þessari líkingu en mér flug hún í hug þegar ég festi hugann á siðblindu. Siðblindir leiðtogar eru einnig lygasjúkir, þá skortir samkennd, stjórnast af græðgi, yfirráða- og valdaþrá.
2. Ekki vera sama, myndaðu þér skoðun. Myndaðu þér skoðun, gefðu þér tíma til að finna áreiðanlegar upplýsingar, lestu bækur, fyndu sársaukann og sjáðu svo í gegnum lygina og blekkingar.
3. Ekki hlaupa í felur með skoðanir þínar. Vertu í tengslum, vertu í birtunni, láttu í þér heyra, settu fordæmi í þínum hópi, valdið er í alvöru hjá fólkinu. Leiðtogar lyppast oft niður ef fólkið snýst gegn þeim. Harðstjórar treysta á hlýðni, undirgefni og að fólk óttist þá – ekki gleðja þá.
4. Ekki beita ofbeldi eða kúgun. Ekki feta veg ofbeldis eins og leiðtogarnir, við vitum að mildin stöðvar ofbeldi en blóð kallar á blóðhefnd. Það kveikir hatur sem varir í áratugi og getur verið vandasamt að slökkva.
5. Sýndu góðvild, þar er styrkurinn. „Konungar geta skapað sér öryggi með góðvild, því tíðar refsingar bæla hatur fárra en vekja það hjá öllum.“ Góðvild veitir betra og meira öryggi heldur en vopnabúr. Lesum Um mildina eftir stóuspekinginn Seneca sem boðaði líka kærleika, umburðarlyndi og ástúð. Þau sem beita valdi sínu af mildi beina almenning til farsældar. Þeir leiðtogar sem grafa undan farsæld jarðarbúa um þessar mundir hóta aftur á móti dauða og tortímingu. Þeir bjóða skilyrðislausa uppgjöf, dauða og algjör yfirráð,.
6. Veldu lífið, kærleikann. Lærum að elska hvert annað og skuldbindum okkur við lífið. Höfnum kúgun og flokkun á manneskjum, yfirburðamennsku. Horfumst í augu við vandann og leysum úr deilum af ábyrgð, án þvingunar.
7. Óttist ekki. Við óttumst stundum ógn og hótun leiðtoganna um dauða. Leiðtoginn segir að ef hann skjóti ekki fyrst og drepi, þá muni óvinurinn skjóta hann og okkur. Það er hin dæmigerða skýring. Mistök okkar felast í því að treysta ekki á aðferð friðar, mildi, kærleika þótt hún sé ráðlögð í nær öllum trúarbrögðum, siðakerfum og lífskoðunum. Við sem treystum á þetta erum kölluð draumórafólk og skýjaglópar – en erum bara raunsæ.
8. Mótmælið í verki. Leiðin til framtíðar er sátt á milli menningarheima, ekki ala á sundrungu. Mótmælið því öllu sem ykkur ofbýður, takið ykkur stöðu og sýnið samstöðu, mætið á torgin, ekki bara á netið. Komið á staðinn í eigin líkama, ekki fylgjast bara með í gegnum vefmyndavélar.
9. Verið hugrökk, þar er friðsemdin. Segið hug ykkar og yfirvinnið hræðsluna. Glíman við óttann sker úr um það hvort við erum hugrökk. Rekum út óttann með kærleika. Æfum hugrekki til að gera það sem við þurfum að gera fyrir okkur og aðra.
10. „Þekktu sjálfan þig“ er ævaforn ráðlegging. Hún merkir á okkar tímum að þekkja bæði styrkleika sína og mörk. Efla með sér þær dygðir sem duga best gegn ógn og ótta, eins og hugrekki og sjálfsaga. Temja okkur virðingu, heilindi, mildi og góðvild til að mæta átökum á friðsamlegan hátt. Að þekkja hvað það er að vera manneskja, vera ljósið í göngunni og hleypa skugganum aldrei fram fyrir sig.
Óttinn kallar á örvæntingu sem opnar fyrir margvísleg viðbrögð eins og að láta berast hugsunar- og afstöðulaust með því sem allir segja og gera og talið er rétt hverju sinni. Við megum ekki leyfa doðanum berast í hendur og fætur.
Vakið hugrökk á verðinum!
Höfundur er heimspekingur og rithöfundur
· Morgunvaktin, viðtal við Gunnar Hersvein á 26. mín. Rás 1. 10.3.26.
· Ár friðar og trausts í samskiptum ríkja Heimildin 15.1.25.
· Hlustið á börnin, ekki á valdakarla Heimildin 28.10.23.
· Stríðið sem gerði veröldina tvöfalt verri. Heimildin 2.10.21.

















































Athugasemdir