Tók við Óskarnum í Úkraínu til að sýna stuðning

Sean Penn reynd­ist vera staddur í Úkraínu þegar hann vann Ósk­arsverð­laun fyrir One Battle After Another.

Tók við Óskarnum í Úkraínu til að sýna stuðning
Sean Penn Vann Óskar fyrir besta leik í auka­hlut­verki sem ófrýni­legur her­for­ingi. Mynd: AFP

Sean Penn, sem hlaut Ósk­arsverð­laun fyrir besta leik í auka­hlut­verki fyrir „Ein orr­usta á fætur annarri“ (One Battle After Another) í gær, er í Úkraínu til að sýna stríðs­hrjáðu land­inu stuðn­ing, að sögn hátt­setts úkra­ínsks emb­ætt­is­manns í sam­tali við AFP.

Penn, sem er ein­arður tals­maður Úkraínu og hefur heim­sótt landið nokkrum sinnum, vann sín þriðju Ósk­arsverð­laun fyrir leik en var ekki við­staddur athöfn­ina.

„Við getum stað­fest að hann er í Úkraínu, en þetta er per­sónu­leg heim­sókn hans; þannig lítur hann á það, að hann þurfi að vera í Úkraínu,“ sagði emb­ætt­is­mað­ur­inn við AFP og bætti við: „Hann vill ein­fald­lega styðja Úkraínu.“

Emb­ætt­is­mað­ur­inn sagði að búist væri við að Penn, sem leik­stýrði heim­ild­ar­mynd um Volody­myr Zelensky árið 2023, myndi hitta for­seta Úkraínu síðar í dag.

Annar heim­ild­ar­maður sagði við AFP að leik­ar­inn „hygð­ist einnig fara að víg­lín­unni“ í aust­ur­hluta Úkraínu.

Heim­ild­ar­mynd Penns, sem er lýs­ing á Zelensky og upp­gangi hans úr grínista í stríðs­leið­toga þegar Rússar réð­ust inn árið 2022, var frum­sýnd á kvik­mynda­há­tíð­inni í Berlín árið 2023.

Í gegnum við­töl sín byggðu Penn og Zelensky upp það sem þeir köll­uðu báðir nána vin­áttu.

Árið 2025 fluttu Penn og popp­stjarnan Bono ástríðu­fulla bón til Vest­ur­landa um að standa með Úkraínu á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes og stilltu sér upp fyrir mynda­tökur á rauða dregl­inum með úkra­ínskum her­mönnum.

Í morgun gerðu Rússar árásir á Kyiv á háanna­tíma, þannig að brak dróna féll á Maidan-torgið í mið­borg­inni. Þrír lét­ust í allri Úkraínu í árás­unum.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár