Bjargað frá aftöku á síðustu stundu

Banda­rík­in eru eina vest­ræna land­ið sem stund­ar dauðarefs­ing­ar. Þar hef­ur 75 ára göml­um manni nú ver­ið forð­að frá af­töku fyr­ir morð sem hann framdi ekki.

Bjargað frá aftöku á síðustu stundu
Charles „Sonny“ Burton Tók ekki í gikkinn og var ekki viðstaddur morðið sem átti að taka hann af lífi fyrir.

Ríkisstjóri bandaríska ríkisins Alabama hefur mildað dauðadóm 75 ára gamals manns tveimur dögum fyrir áætlaða aftöku hans og benti á að hann hefði ekki tekið í gikkinn í skotárásinni sem hann var dæmdur fyrir.

Kay Ivey, ríkisstjóri Repúblikanaflokksins, sagði í gær að það væri „ranglátt“ að taka Charles „Sonny“ Burton af lífi, en hann hefur setið á dauðadeild í meira en þrjá áratugi, þar sem hann var fyrir utan bygginguna þegar vitorðsmaður hans skaut mann til bana í vopnuðu ráni.

Burton var einn af sex mönnum sem tóku þátt í ráninu í verslun í borginni Talladega árið 1991 þar sem viðskiptavinur, Doug Battle, var drepinn.

Rannsókn leiddi í ljós að Burton tók ekki í gikkinn sem hleypti af banaskotinu, en hann var dæmdur fyrir morð sem vitorðsmaður og dæmdur til dauða árið 1992.

Byssumaðurinn Derrick DeBruce var einnig dæmdur til dauða, en dómur hans var mildaður í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Hann lést síðar í fangelsi.

Ivey mildaði dauðadóm Burtons í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn, aðeins tveimur dögum fyrir áætlaða aftöku hans með köfnunarefnisgasi á fimmtudag.

„Charles Burton skaut ekki fórnarlambið, skipaði ekki byssumanninum að skjóta fórnarlambið og var þegar farinn úr versluninni þegar skotárásin átti sér stað,“ sagði Ivey í yfirlýsingu.

„Ég get ekki með góðri samvisku haldið áfram með aftöku herra Burtons við svo ólíkar aðstæður. Ég tel að það væri ranglátt að einn þátttakandi í þessum glæp yrði tekinn af lífi á meðan þátttakandinn sem tók í gikkinn var það ekki.“

Þetta er í annað sinn sem Ivey náðar fanga á dauðadeild síðan hún tók við embætti ríkisstjóra árið 2017.

Á þeim tíma hefur hún haft yfirumsjón með 25 aftökum.

Fimm fangar á dauðadeild í Bandaríkjunum hafa verið teknir af lífi það sem af er ári, samkvæmt upplýsingamiðstöð um dauðarefsingar (DPIC).

Bandaríkin eru með eitt hæsta hlutfall fangselsaðra einstaklinga af íbúafjölda, eða rúmlega 0,5% allra. Þar eru nú tæpar tvær milljónir manna í fangelsi og til viðbótar um 3,7 milljónir á skilorði eða reynslulausn. 

Bandaríkin eru eina landið á Vesturlöndum sem viðheldur dauðarefsingum. Þar voru 25 líflátnir í fyrra. Meðal annarra ríkja sem tóku flesta fanga af lífi eru Kína, Sádí-Arabía, Afganistan, Norður-Kórea, Írak og Íran. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Dauðarefsingum ætti aldrei að beita, ekki einusinni á morðingja einsog Trump og það hyski.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
1
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár