Blaðamenn Heimildarinnar með tvær tilnefningar til Blaðamannaverðlauna

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri Heim­ild­ar­innar, og Esther Jóns­dóttir blaða­maður eru til­nefndar til Blaða­manna­verð­launa Íslands.

Blaðamenn Heimildarinnar með tvær tilnefningar til Blaðamannaverðlauna

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir rit­stjóri og Esther Jóns­dóttir blaða­maður eru til­nefndar til Blaða­manna­verð­launa Íslands. Ingi­björg í flokki við­tal árs­ins og Esther í flokki umfjöllun árs­ins.

Ingi­björg er til­nefnd fyrir við­tal við Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands. Í umsögn dóm­nefndar er sér­stak­lega minnst á að Ingi­björg hafi fylgt Höllu í lífi og starfi um nokk­urra daga skeið og gefur það les­and­anum nýja og áhuga­verða sýn á for­set­ann Höllu og kon­una á bak við emb­ættið.

„Halla greinir frá sárs­auka­fullri reynslu í barn­æsku og kyn­ferð­is­of­beldi sem hefur markað líf hennar. Í við­tal­inu fel­ast mik­il­væg skila­boð frá Höllu til þolenda um að kyn­ferð­is­of­beldi þurfi ekki að skil­greina þá um ókomna tíð,“ segir í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar.

Esther er til­nefnd fyrir lif­andi og afar fræð­andi umfjöllun um ferð hennar með hópi vís­inda­manna á einn afskekktasta stað lands­ins, Esju­fjöll í Vatna­jökli, eins og segir í rök­stuðn­ingi nefnd­ar­innar.

„Esther tekst ein­stak­lega vel að hrífa les­endur með sér, veita inn­sýn og vekja áhuga á vís­inda­legum upp­götv­unum og sér­hæfðum smá­at­riðum um gróð­ur­far og áhrif lofts­lags­breyt­inga á sam­spil jökla og nátt­úru,“ segir dóm­nefndin. 

Til­nefn­ingar eru eft­ir­far­andi:

Viðtal ársins 2025

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildin

Fyrir við­tal við Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands. Ingi­björg Dögg fylgir Höllu í lífi og starfi um nokk­urra daga skeið og gefur það les­and­anum nýja og áhuga­verða sýn á for­set­ann Höllu og kon­una á bak við emb­ættið. Halla greinir frá sárs­auka­fullri reynslu í barn­æsku og kyn­ferð­is­of­beldi sem hefur markað líf hennar. Í við­tal­inu fel­ast mik­il­væg skila­boð frá Höllu til þolenda um að kyn­ferð­is­of­beldi þurfi ekki að skil­greina þá um ókomna tíð.

Jakob Bjarnar Grétarsson, Sýn

Fyrir við­tal á Vísir.is við Friðrik Ólafsson, stór­meist­ara í skák, í til­efni 90 ára afmælis hans. Jakob ávinnur sér traust þessa hlé­dræga og hóg­væra manns og úr verður skemmti­legt og fróð­legt við­tal þar sem Friðrik rekur lífs­hlaup sitt, við­ur­kennir að hafa verið undra­barn í skák, segir frá sam­bandi sínu við Bobby Fischer og ræðir breyt­ingar sem hafa orðið á skák­íþrótt­inni. Viðtalið er fal­legur og fróð­legur minn­is­varði um glæstan feril þessa merka skák­manns.

Sunna Sæmundsdóttir, Sýn

Fyrir við­tal í Kompás við Birgi Karl Ósk­ars­son og Iðunni Eiríks­dóttur, for­eldra Bryn­dísar Klöru sem lést eftir stungu­árás á menn­ing­arnótt 2024. Birgir og Iðunn deila sögu sinni og harmi á erf­ið­ustu stundu lífs síns. Þau draga ekk­ert undan í frá­sögn af atburðum hinnar örlaga­ríku nætur en á sama tíma veita þau þjóð­inni inn­sýn í fal­legt lífs­hlaup Bryn­dísar Klöru. Viðtalið er áhrifa­mikið og stuðl­aði að umræðum og aðgerðum sem bein­ast að því að vinna að öryggi og vel­ferð ung­menna.

Umfjöllun ársins 2025

Esther Jónsdóttir, Heimildin

Fyrir lif­andi og afar fræð­andi umfjöllun um ferð hennar með hópi vís­inda­manna á einn afskekktasta stað lands­ins, Esju­fjöll í Vatna­jökli. Esther tekst ein­stak­lega vel að hrífa les­endur með sér, veita inn­sýn og vekja áhuga á vís­inda­legum upp­götv­unum og sér­hæfðum smá­at­riðum um gróð­ur­far og áhrif lofts­lags­breyt­inga á sam­spil jökla og nátt­úru.

Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, RÚV

Fyrir vand­aða og yfir­grips­mikla umfjöllun í Kveik um afleið­ingar alvar­legrar e.coli mat­ar­sýk­ingar sem upp kom í leik­skól­anum Mána­garði í Reykja­vík. Kristín fylgir mál­inu eftir af festu, varpar nýju ljósi á bæði ástæður og afleið­ingar smits­ins, talar við fjölda fólks, spyr óvæg­inna spurn­inga og sýnir áður óbirt mynd­bönd og ljós­myndir. Umfjöll­unin er skýr, vel fram sett og nýtir kosti mynd­mið­ils­ins vel.

Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir, RÚV

Fyrir hlað­varps­þátta­röð­ina Kon­ungs­sinnar í Kísildal sem fjallar um upp­runa þeirra hug­mynda­fræði­legu svipt­inga sem nú eiga sér stað í Banda­ríkj­unum. Þætt­irnir eru fræð­andi og afhjúp­andi og ljóst að þátta­stjórn­endur hafa lagt í mikla heim­ilda­vinnu. Þetta marg­slungna og flókna umfjöll­un­ar­efni er sett fram í lif­andi sam­tals­formi sem gerir efnið aðgengi­legt og spenn­andi.

Rannsóknarblaðamennska ársins 2025

Freyr Gígja Gunnarsson og Helgi Seljan, RÚV

Fyrir umfjöllun í Spegl­inum um umfangs­mikil við­skipti emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra við ráð­gjafa­fyr­ir­tæki sem vann afar fjöl­breyti­leg verk­efni fyrir emb­ættið og fékk háar upp­hæðir greiddar. Með mik­illi upp­lýs­inga­öflun var dregin upp skýr mynd af mál­inu. Umfjöll­unin varp­aði ljósi á með­ferð á opin­beru fé hjá stórri rík­is­stofnun og leiddi til atburða­rásar sem end­aði með því að rík­is­lög­reglu­stjóri hætti störfum.

Gunnar Gunnarsson og Viðar Guðjónsson, Austurglugginn og Morgunblaðið

Fyrir umfjöllun um stöðu geð­heil­brigð­is­mála sem unnin var í sam­starfi  Morg­un­blaðs­ins og  Aust­ur­glugg­ans og birt­ist á báðum. Upplýst var að maður sem ban­aði hjónum í Nes­kaup­stað árið 2024 átti að vera í gæslu. Umfjöll­unin beindi kast­ljós­inu að stöðu geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á lands­byggð­inni og leiddi til þess að yfir­völd ákváðu að fjölga úrræðum fyrir ein­stak­linga sem hvorki áttu heima í fang­elsi né á hefð­bund­inni geð­með­ferð­ar­stofnun.

Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson, RÚV

Fyrir umfjöllun í Kveik um umfangs­miklar njósn­a­að­gerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að und­ir­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugð­ist leita réttar síns gagn­vart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrr­ver­andi og þáver­andi lög­reglu­mönnum. Umfjöll­unin leiddi til athug­unar eft­ir­lits­nefndar um störf lög­reglu, per­sónu­verndar, dóms­mála­ráð­herra og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á verk­lagi lög­reglu.

Blaðamannaverðlaun ársins 2025

Kjartan Kjartansson, Sýn

Fyrir frétta­skýr­ingar um lofts­lags­mál á Vísir.is. Flókin umfjöll­un­ar­efni skýrð á manna­máli án þess að afsláttur sé gef­inn af fag­mennsku. Kjartan hefur sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði mis­skiln­ing stjórn­valda á los­un­ar­mark­miði Íslands í sam­starfi við Evr­ópu­sam­bandið sem varð til þess að íslensk stjórn­völd þurftu að end­ur­skoða mark­mið sín vegna Par­ís­ar­samn­ings­ins.

Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Morgunblaðið

Fyrir ítar­lega umfjöllun á mbl.is um neyð­ar­á­stand í mál­efnum barna í við­kvæmri stöðu. Sólrún Lilja hefur sýnt ein­staka þraut­seigju við að vekja athygli á þessum vanda með ítrek­uðum afhjúp­unum, viða­mik­illi umfjöllun og eft­ir­fylgni með málum. Hún hefur krafið stjórn­völd svara og þannig stuðlað að löngu tíma­bærum breyt­ingum í þessum við­kvæma mála­flokki. 

Þóra Tómasdóttir, RÚV

Fyrir frétta­skýr­ingar í þætt­inum Þetta helst. Þóra er næm á frétta­efni sem öðrum sést yfir og beitir ríku­legri frá­sagn­ar­gáfu við fram­setn­ingu þess. Dæmi um þetta er saga írska fiðlu­leik­ar­ans  Sean Bradley sem hvarf spor­laust frá Íslandi,  hálf­ís­lensku dragdrottn­ing­ar­innar Heklínu sem fannst látin við dul­ar­fullar aðstæður í Lundúnum, Sofiu Kolesnikovu sem fannst látin á Selfossi og ung­lings­stúlku sem varð fyrir barð­inu á ofbeld­is­hópnum 764.

Dómnefnd Blaða­manna­verð­laun­anna 2025 skipa Pálmi Jónasson (for­maður), Arndís Þor­geirs­dóttir, Bryn­hildur Ólafs­dóttir og Steinunn Stef­áns­dóttir.

 Verð­launa­af­hend­ing fer fram í Hafn­ar­húsi við Tryggva­götu í Reykja­vík, föstu­dag­inn 13. mars næst­kom­andi klukkan 18.00. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár