Þjóðaratkvæðagreiðsla um Evrópuviðræður 29. ágúst

Rík­is­stjórn­in legg­ur til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort taka eigi upp við­ræð­ur um að­ild að Evr­ópu­sam­andinu að nýju. Gert er ráð fyr­ir að at­kvæða­greiðsl­an fari fram í ág­úst. „Stað­reynd­in er sú að samn­ings­staða okk­ar, að okk­ar mati, er góð núna,“ seg­ir for­sæt­is­ráð­herra.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um Evrópuviðræður 29. ágúst

Stefnt er að því að þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju fari fram 29. ágúst. Þetta var kynnt á blaðamannafundi í stjórnarráðinu í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lagði þingsályktun þess efnis fram í ríkisstjórn í morgun, sem var samþykkt samhljóða.

„Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu,“ verður spurningin og hægt að svara henni já eða nei. 

„Við vorum að klára hundraðasta fund þessarar ríkisstjórnar,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þegar hún hóf blaðamannafundinn. Ísland stæði bæði sterkt efnahagslega en líka þegar kæmi að sjálfsmynd þjóðarinnar. 

Sterk samningsstaða

„Við ætlum að leita leiðsagnar hjá þjóðinni,“ sagði hún og minnti á að það hafi verið ákveðið í stjórnarsáttmála. „Af hverju núna? Staðreyndin er sú að samningsstaða okkar, að okkar mati, er góð núna.“

Verði samið um aðild verður sá samningur svo borinn undir þjóðina. Atkvæðagreiðslan í ágúst snýst aðeins um hvort taka …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár